Viðskipti innlent

Hagnaður Landsbankans dregst töluvert saman

Sæunn Gísladóttir skrifar
Landsbankinn hagnaðist um 16,4 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins.
Landsbankinn hagnaðist um 16,4 milljarða króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Vísir/Rósa Jóhannsdóttir
Afkoma Landsbankans var jákvæð um 16,4 milljarða króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins 2016 samanborið við 24,4 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2015, segir í tilkynningu.

Hreinar vaxtatekjur voru 26,2 milljarðar króna og hækkuðu um 4,7 prósent á milli tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 5,9 milljörðum króna og hækkuðu um 15 prósent frá sama tímabili árið áður. Virðisbreytingar námu 4,4 milljörðum króna samanborið við 12,3 milljarða króna á sama tímabili árið áður. Aðrar rekstrartekjur námu 4,7 milljörðum króna samanborið við 8,4 milljarða króna ári fyrr og skýrist lækkunin aðallega af minni hagnaði af hlutabréfum. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 8,5 prósent á ársgrund­velli samanborið við 13,5 prósent á sama tímabili 2015.

Rekstrartekjur á fyrstu níu mánuðum ársins námu 41,2 milljörðum króna samanborið við 50,9 milljarða króna á sama tímabili árið 2015. Rekstrarkostnaður samtals lækkaði um 0,4 prósent á milli ára og er 17,6 milljarðar króna, þar af var launakostnaður 10,4 milljarðar og annar rekstrarkostnaður 7,2 milljarðar. Heildareignir Landsbankans í lok september voru um 1.134 milljarðar króna samanborið við 1.176 milljarða króna ári fyrr og hefur því efnahagur bankans dregist saman um tæp 4 prósent síðustu 12 mánuði.

Landsbankinn greiddi á þessu ári 28,5 milljarða króna í arð í tveimur greiðslum, í apríl og  september. Þann 15. september birti Landsbankinn tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti af hluthöfum samkvæmt endurkaupaáætlun á þremur tilgreindum endurkaupatímabilum. Á fyrsta endurkaupatímabili  keypti Landsbankinn um 120 milljón hluti eða  0,5 prósent af útgefnum hlutum og nam kaupverð þeirra 1,2 milljörðum króna. Endurkaupin geta að hámarki numið samtals 480 milljónum hluta eða sem nemur 2 prósent af útgefnu hlutfé. Í lok september var eigið fé bankans 251,1 milljarður króna.  Eiginfjárhlutfallið var 29,1 prósent samanborið við 29,2 prósent á sama tíma árið áður.

Aldrei greitt hærri arð

Landsbankinn hefur greitt verulegar fjárhæðir í arð til eigenda á árinu, hærri en nokkru sinni fyrr. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×