Viðskipti erlent

Hagnaður HSBC dregst saman um 14%

Sæunn Gisladóttir skrifar
Hagnaður breska bankans HSBC drógst saman um fjórtán prósent á fyrsta ársfjórðungi ársins, í kjölfar gríðarlegra sveiflna á alþjóðamörkuðum í byrjun árs.

Hagnaður fyrir skatt nam 6,1 milljarði dollara, jafnvirði 744 milljarða íslenskra króna, samanborið við 7,1 milljarð dollara, jafnvirði rúmlega 850 milljarða íslenskra króna fyrir ári síðan. Greiningaraðilar höfðu hins vegar áætlað enn meiri samdrátt í hagnaði.

HSBC hefur sagt upp þúsundum starfsmanna á tímabilinu, 245.212 starfsmenn störfuðu hjá bankanum í 71 landi í lok fyrsta ársfjórðungs. Áætlarnir eru um að lækka rekstrarkostnað um 5 milljarða dollara, rúma 600 milljarða króna, á árinu.

Fjöldi banka hafa nú þegar tilkynnt um það að hagnaður dróst saman hjá þeim á fyrsta ársfjórðungi 2016, fjárfestingabankar hafa átt sérstaklega erfitt uppdráttar. 


Tengdar fréttir

Rúmlega 140 þúsund uppsagnir á einu ári

Stærstu bankar Evrópu og Bandaríkjanna tilkynntu um fjölda uppsagna á síðastliðnu ári. Síðast var tilkynnt að leggja ætti niður þúsund stöðugildi hjá RBS á komandi misserum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×