Viðskipti innlent

Hagnaður HS Veitna eykst um 35 milljónir

Haraldur Guðmundsson skrifar
Fjárhagsstaða HS Veitna er sögð sterk og horfur góðar.
Fjárhagsstaða HS Veitna er sögð sterk og horfur góðar. Vísir/Valli
Heildarhagnaður HS Veitna hf. á fyrri hluta ársins nam 351 milljón króna og jókst um 35 milljónir frá fyrri árshelmingi 2013.

Aukningin skýrist af hækkun tekna, lækkun rekstrarkostnaðar og lægri verðbótum langtímalána, samkvæmt tilkynningu félagsins um uppgjörið.

Í lok júní áttu þrír hluthafar yfir tíu prósenta hlut í félaginu. Reykjanesbær er stærsti eigandinn með 50,1 prósents hlut.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×