Viðskipti erlent

Hagnaður framleiðanda Angry Birds dregst saman um 73 prósent

ingvar haraldsson skrifar
Hagnaður Rovio dregst saman um 73 prósent milli ára.
Hagnaður Rovio dregst saman um 73 prósent milli ára. mynd/rovio
Hagnaður finnska snjallsímaleikjafyrirtækisins Rovio dróst saman um 73 prósent milli ára. Hagnaður félagsins árið 2014 nam 10 milljónum evra en var 36,5 milljónir evra árið 2013. Reuters greinir frá.

Þekktasta og stærsta vörumerki fyrirtækisins er Angry Birds sem byrjaði sem leikur fyrir snjallsíma og spjaldtölvur árið 2009. Leikurinn varð fljótlega sá vinsælasti á þeim markaði.

Sala á vörum merktum Angry Birds á borð við leikföng, fatnað og sælgæti hefur dregist saman. Rovio vonast hins vegar eftir að þrívíddarkvikmynd um reiðu fuglana skili þeim auknum tekjum en hún á að koma út árið 2016.

Sala Rovio dróst saman um 9 prósent milli ára og nam 158,3 milljónum evra.  Tekjur frá snjallsímaleikjum jukust hins vegar um 16 prósent vegna nýrra snjallsímaleikja á borð við Jolly Jam og Angry Birds Stella Pop!

"Það er ljóst að við getum ekki sætt okkur við þennan tekjusamdrátt“ segir Pekka Rantala forstjóri Rovio. Langtímamarkmið Rovio er að verða risi í skemmtanabransanum og keppa þar við fyrirtæki á borð við Walt Disney.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×