Hagnaður Bakkavarar Group 2,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi 28. apríl 2008 18:57 Ágúst Guðmundsson. MYND/Vilhelm Gunnarsson
Rekstrarhagnaður Bakkavarar Group á fyrsta fjórðungi ársins var 2,4 milljarðar króna og veltuaukning 8% en veltan var 57,6 milljarðar króna. Ágúst Guðmundsson forstjóri segir niðurstöðurnar vonbrigði, erfiðar aðstæður á mörkuðum hafi haft mikil áhrif á afkomu félagsins, t.d. áframhaldandi verðhækkanir á hráefni ásamt umtalsverðri lækkun á gengi breska pundsins gagnvart evru. Í fréttatilkynningu frá Bakkavör er þetta enn fremur haft eftir Ágústi: „Einnig hafði hagræðing í framleiðslu félagsins á tilbúnum réttum, sem hafin var á síðasta ári, mikil áhrif á afkomu og sölu í Bretlandi. Hins vegar teljum við að félagið muni njóta ávinnings af þessum breytingum þegar til lengri tíma er litið. Þá er talið að óvissa vegna núverandi efnahagsástands hafi einnig haft áhrif á sölu á ferskri tilbúinni matvöru í Bretlandi. Áfram krefjandi viðskiptaumhverfi Við gerum ráð fyrir að viðskiptaumhverfið verði áfram krefjandi, en reiknum jafnframt með að sala félagsins muni taka við sér að nýju á síðari hluta 2008. Sala og afkoma félagsins á meginlandi Evrópu og í Asíu var áfram góð og við sjáum veruleg vaxtartækifæri utan Bretlands í framtíðinni og einbeitum okkur að því að styrkja stöðu félagsins á meginlandi Evrópu, í Asíu og Bandaríkjunum. Það sem af er þessu ári höfum við keypt fimm fyrirtæki utan Bretlands, í Kína, Hong Kong, Bandaríkjunum og á Ítalíu. Ennfremur tilkynntum við í dag um að félagið hafi gert skiptasamning um 10.9% hlut í Greencore Group en við álítum að þessi samningur falli vel að stefnu Bakkavarar og endurspegli trú okkar á markaðnum fyrir fersk tilbúin matvæli. Langtímahorfur félagsins eru mjög góðar. Undirstöður rekstrar Bakkavarar eru traustar og markaðsstaða góð á öllum þeim mörkuðum sem félagið starfar. Bakkavör Group er því vel í stakk búið til að takast á við krefjandi aðstæður og einbeita sér að frekari vexti á alþjóðavettvangi."
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira