Viðskipti innlent

Hagnaður Arion banka jókst um 11,5 milljarða milli ára

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vísir/Pjetur
Hagnaður Arion banka á fyrri helmingi ársins 2014 nam 17,4 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 5,9 milljarða króna á sama tímabili 2013 en þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Arðsemi eigin fjár var 23,4% samanborið við 8,9% á sama tímabili árið 2013. Heildareignir námu 949,0 milljörðum króna samanborið við 938,9 milljarða króna í árslok 2013.

Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 25,6% en var 23,6% í árslok 2013.

„Afkoma bankans á fyrstu sex mánuðum ársins er mjög góð og í takt við okkar væntingar. Grunnrekstur bankans einkennist áfram af stöðugleika og fjárhagslegur styrkur bankans heldur áfram að vaxa,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka.

„Á undanförnum misserum höfum við unnið að því að auka vægi þóknanatekna í heildartekjum bankans og er ánægjulegt að sjá árangur af þeirri vinnu í þessu uppgjöri. Sala bankans á hlutum í HB Granda hf. setur mark sitt á uppgjörið með jákvæðum hætti.“

Höskuldur segir að salan á HB Granda og skráning fyrirtækisins á Aðallista Kauphallarinnar hafi verið mikilvægur áfangi fyrir bankann.

„Einnig var mikilvægt fyrir hlutabréfamarkaðinn á Íslandi að öflugt sjávarútvegsfyrirtæki væri skráð á Aðallista Kauphallarinnar. Góð afkoma á tímabilinu styrkir enn frekar eiginfjárhlutfall bankans sem er nú 25,6% sem er vel yfir þeim kröfum sem gerðar eru til bankans. Þá greiddi bankinn eigendum sínum arð á tímabilinu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×