Viðskipti innlent

Hagkerfið að staðnæmast: Af hverju er það áhyggjuefni?

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Verðstöðnun eða hjöðnun getur þýtt aukið atvinnuleysi og fest hagkerfið í vítahring.
Verðstöðnun eða hjöðnun getur þýtt aukið atvinnuleysi og fest hagkerfið í vítahring. Vísir/Daníel
Bregðast þarf við óvenju lágri verðbólgu hér á landi, sem hefur mælst talsvert undir viðmiðunarmörkum Seðlabanka Íslands. Ef heldur áfram sem horfir getur það þýtt samdrátt í samfélaginu sem veldur auknu atvinnuleysi og setur óverðtryggð lán í talsvert uppnám.

Þórólfur segir ekki auðvelt að koma verðbólgu af stað á nýjan leik.Vísir/Kristinn
Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir að almennt sé talið að verðbólga á bilinu tvö til þrjú prósent sé eðlileg. Síðastliðna tólf mánuði hefur verðbólgan hækkað um 0,8 prósent. Það er 1,7 prósentustigum fyrir neðan markmið seðlabankans, sem er 2,5 stig.

„Ef að fólk hefur í hyggju að fjárfesta í varanlegum neysluvarningi, nýju sjónvarpi, nýjum bíl eða þessháttar, og það er verðhjöðnun í gangi þá hugsar það með sér: „Þessi bíll kostar tvær og hálfa milljón núna en þessi bíll, kannski tæknilega betur búinn, kostar 2,2 milljónir á næsta ári. Ég bíð með þetta.“ Þá verður of mikill sparnaður í hagkerfinu,“ útskýrir Þórólfur.

„Ef að heimilin spara of mikið þá minnka umsvif í hagkerfinu og allir hafa það verra,“ segir hann og bendir á að þetta geti haft í för með sér aukið atvinnuleysi vegna minni umsvifa og eftirspurnar. Þórólfur segir að þetta sé vítahringur sem erfitt sé að losa sig úr. 

Már Guðmundsson seðlabankastjóri þarf að gefa stjórnvöldum skýrslu um hvernig bregðast eigi við lítilli verðbólgu síðustu mánuði.Vísir/Stefán
Staðan sem nú er upp komin er fremur óvenjuleg fyrir Ísland. Síðustu ár hefur of mikil verðbólga verið áhyggjuefni en ekki of lítil. Staðan er þannig nú að Seðlabanki Íslands þarf að skila ríkisstjórninni skýrslu um hvernig bregðast eigi við.

Þórólfur bendir einnig á að þetta geti haft slæm áhrif á stöðu óverðtryggðra lána. Þegar verðbólga mælist ekki eða sé neikvæð taki verðtryggð lán mið af því, en ekki þau óverðtryggðu.

„Ef þú ert með verðhjöðnun og venjulegan lánasamning, bara nafnvexti en ekki verðtryggingarákvæði, þá þýðir verðhjöðnunin það að  greiðslubyrðin á láninu sífellt að þyngjast. Ef þú stilltir þig af í upphafi að þú sért akkúrat á mörkunum sem þú ræður við, þá gerist það að þú ferð yfir þessi mörk,“ segir hann. „Þá verður forsendubrestur með öfugum formerkjum.“


Tengdar fréttir

Verðbólga undir þolmörkum

Tólf mánaða verðbólga er komin undir þolmörk Seðlabankans. Tólf mánaða verðbólga mælist 0,8 prósent í desember en var 1 prósent í nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×