Tíska og hönnun

Hagkaup opnar nýja fataverslun í Kringlunni

Gunnar Ingi Siguðrsson ásamt Emmu Goodman, rekstrarstjóra F&F í Evrópu, og Olgu Gunnarsdóttur rekstrarstjóra F&F á Íslandi
Gunnar Ingi Siguðrsson ásamt Emmu Goodman, rekstrarstjóra F&F í Evrópu, og Olgu Gunnarsdóttur rekstrarstjóra F&F á Íslandi Vísir/Vilhelm
Í byrjun næsta mánaðar opnar Hagkaup nýja fataverslun á annarri hæð Kringlunnar þar sem sérvöruverslun þeirra er nú.

Þar verða vörur frá alþjóðlegri tískukeðju, F&F, sem er í eigu Tesco en þar er seldur fatnaður og aukahlutir fyrir fjölskylduna.

„Við munum bjóða besta mögulega verðið á Íslandi. Markmiðið er að bjóða flottan fatnað á frábæru verði, allt frá samfellum upp í síðkjóla,“ segir Gunnar Ingi Sigurðsson framkvæmdastjóri Hagkaups, aðspurður.

Áætlað er að opna flaggskipsverslunina 8.nóvember og í framhaldi af því mun Hagkaup hætta með núverandi fatadeildir sínar og breyta þeim í F&F. „Við höfum leitað að samstarfsaðila lengi, sem er með allan pakkann, til þess að endurnýja fataverslanirnar okkar.

Íslendingar eru meðvitaðir um hvað er inn, við erum mjög „trendy“ eyja og með þessu vonumst við til þess að færa fatasölu í aðra vídd.“

F&F var stofnuð árið 2001 og er að sögn Gunnars eitt mest vaxandi merki í heimi í þessum flokki. „Þetta er búið að vera langt ferli en undirbúningur hófst snemma í vor. Nú er bara að færa Hagkaup upp á næsta stig.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×