Heilsa

Hágæða munnmök?

sigga dögg skrifar
Vísir/Getty
Í kvennafjölmiðli einum eru konum veitt sex góð ráð til að komast í gegnum hið leiðindahlutverk sem munnmök við lim eru (samkvæmt vefsíðunni er þetta hundleiðinlegt)

Þessi ráð eru eftirfarandi:

1. Notaðu tunguna til að gera orðaleiki

2. Ímyndaðu þér að þú leikir á harmónikku

3. Æfðu jógaöndun (einnig þekkt sem fæðingaröndun)

4. Farðu í leikinn -hvort myndiru frekar...-

5. Reyndu að geta hvort eistað sé stærra

6. Teldu hversu lengi þú kemst hjá því að rekast á kynfærakrullu

Það er með ólíkindum að svona sé skrifað um hugmyndir kvenna um munnmök (og í raun ættu þetta að vera almennar leiðbeiningar um munnmök við lim víst það er svona leiðinlegt verkefni og ekki að vera bundið við konur).

Hér eru 10 miklu betri ráð þegar kemur að munnmökum og gilda óháð kynhneigð, kynfærum og kynvitund!

1. Ekki stunda munnmök nema þig langi til þess

2. Fáðu samþykki viðkomandi áður en byrjar á munnmökum, það langar ekki alla að þiggja munnmök

3. Njóttu þess að stunda munnmök sem hluta af kynlífinu, þetta er ekki verkefni sem þarf að klára heldur snýst þetta um að njóta

4. Ef þú nýtur þess ekki, veltu því fyrir þér hvað þú gætir gert til þess að njóta betur, væri þægilegara að skipta um stellingu?

5. Ef þér finnst þetta leiðinlegt eða á einhvern hátt óheillandi, hættu þá

6. Spurðu viðkomandi hvort þetta sé gott

7. Spurðu viðkomandi hvernig mætti gera betur 

8. Notaðu hendur auk munns

9. Munnmök geta verið æsandi hluti af forleiknum ef heilinn er með í að gera það svo, ef heilinn er annars staðar, til dæmis í hugarleikfimi, þá er ósennilegt að þetta verði kynferðislega æsandi reynsla fyrir þig, heilann með eða sleppa þessu

10. Ekki stunda munnmök til að geta svo þegið munnmök, það er ekki kvöð á munnmökum um skiptidíl, þau eiga rétt á sér útaf fyrir sig.

Ef þú vilt svo krydda þetta er gaman að henda inn smá stunum og jafnvel sleipiefni með bragði en ekki ímynduðum tónleikum nema markmiðið sé að hlæja smá saman sem er auðvitað alltaf skemmtilegt í bólinu.


Tengdar fréttir

Sleipiefni skal smakka

Sleipiefni er fáanlegt með allskyns bragðtegundum og sumar geta ert kynfærin og því er vissara að smakka fyrst.

Skiptir forhúðin máli?

Lesandi sendir inn spurningu þar sem hann veltir því fyrir sér hvort hægt sé að aðstoða hann því hann er með þrönga forhúð eða jafnvel hvort það sé kostur þegar kemur að endingu í samförum.

Fimm algengar mýtur um munnmök

Mikið er rætt um munnmök en skal það hér með leiðréttist hvað fólk talar oft um en í raunveruleikanum er alls ekki málið

Greddupilla fyrir konur?

Fyrst var það blá pillan fyrir typpin að rísa en nú er það bleika pillann fyrir...snípinn að stækka?






Fleiri fréttir

Sjá meira


×