Bíó og sjónvarp

Hafþór birtir mynd frá tökum Game of Thrones

Samúel Karl Ólason skrifar
Hafþór Júlíus Björnsson birti í dag mynd á Twitter þar sem sjá má förðun hans sem fjallið í síðustu þáttaröð Game of Thrones. Líklegast er myndin frá tökum fyrir níunda þátt seríunnar þegar Fjallið, sem Hafþór leikur, tók af sér hjálminn fyrir Cersei Lannister.

Cersei var að pynta nunnuna Unella og steig fjallið inn í fangaklefann og tók af sér hjálminn. Það var í fyrsta sinn sem áhorfendur fengu að sjá framan í Fjallið eftir að hann dó.

Eins og sjá má á myndinni hefur Hafþór verið farðaður mikið fyrir atriðið og er hann heldur ófrýnilegur.

Sjá einnig: Hafþór snýr aftur í Game of Thrones.

Hér að neðan má sjá hluta úr atriðinu sem um ræðir, en atriðið allt má sjá hér á Youtube.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×