Skoðun

Hafrannsóknir eru fjárhagslega skynsamlegar

Kolbeinn Árnason skrifar
Undanfarin ár hafa framlög til hafrannsókna dregist saman. Fyrir hagkerfi sem byggir afkomu sína mikið til á sjávarútvegi hljóta öflugar hafrannsóknir að vera einkar mikilvægar og því er þetta mjög bagalegt ekki síst um þessar mundi þegar miklar umbreytingar eru í hafi sem við sem sjávarútvegsþjóð þurfum að gefa gaum.

Þetta sést vel þegar loðnan er skoðuð. Með auknu streymi hlýsjávar norður fyrir land á tímabilinu frá því undir lok síðustu aldar hefur útbreiðsla loðnunnar færst norðar og vestar, frá landgrunninu NV af landinu og í átt til Grænlands og þar norður með. Jafnframt hefur göngumynstur hrygningarloðnu breyst og tímasetningar riðlast. Við þessar aðstæður hefur svæðið þar sem leita þarf loðnu stækkað verulega og tíminn lengst og því orðið erfiðara að finna loðnuna til mælingar. Sérstaklega hefur þetta reynst erfitt undanfarin þrjú ár og gengið seint og illa að ákvarða endanlegan loðnukvóta vertíðanna út frá mælingum.

Á yfirstandandi vertíð er í fyrsta skipti byggt á nýrri aflareglu í loðnuveiðunum. Forsenda þess að hún yrði tekin upp var sú að menn myndu efla vöktun og rannsóknir. Staðan er hins vegar sú að skorið hefur verið enn frekar niður hjá Hafró.

Þessi tveir þættir – breytt útbreiðsla ásamt breyttu göngumynstri og breytt aflaregla – kalla báðir á auknar loðnurannsóknir. Mikil verðmæti eru í húfi. Ætla má að hver veidd 10 þúsund tonn af loðnu sem unnin eru til manneldis gefi um 1,2 milljarða króna í útflutningstekjur. Að sama skapi má ætla að 100 þúsund tonn gefi um 12 milljarða í útflutningstekjur. Loðnuveiði og vinnsla skipta allt þjóðarbúið miklu máli, skapa atvinnu á sjó og í landi, ýta undir fjárfestingar og skapa veltu og framkvæmdir í samfélaginu.

Veiðigjald á hvert kíló af loðnu upp úr sjó er kr. 3,54. Þannig gefa 100 þúsund tonn af loðnu 354 milljónir króna beint til ríkissjóðs í formi veiðigjalda á yfirstandandi fiskveiðiári. Auk veiðigjalds eru ýmis önnur opinber gjöld sem loðnuveiði og vinnsla skapar sbr. aflagjald, tryggingagjald, útsvar, kolefnisgjald og tekjuskattur.

Ætla má að hver úthaldsdagur á skipi Hafrannsóknarstofnunar kosti um 1,6 millj.kr. Misjafnt er eftir aðstæðum hversu langan tíma loðnumæling tekur. Ef loðnumæling tveggja skipa tekur til dæmis fimm daga þá þýðir það 16 millj.kr. í kostnað. Af ofangreindu má ljóst vera að auknar loðnurannsóknir eru ekki einungis nauðsynlegar heldur fjárhagslega skynsamlegar.




Skoðun

Sjá meira


×