Innlent

Hafnarfjarðarbær vill kaupa St. Jósefsspítala

Atli Ísleifsson skrifar
Fasteignirnar voru auglýstar til sölu á síðasta ári.
Fasteignirnar voru auglýstar til sölu á síðasta ári. Vísir/Pjetur
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur gert að tillögu sinni að formlegar samningaviðræður hefjist við Fasteignir ríkisins um kaup bæjarins á eignarhlut ríkisins í St. Jósefsspítala.

Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir að síðustu misseri hafi viðræður átt sér stað milli Hafnarfjarðarbæjar og fjármálaráðuneytisins um framtíð bygginga St. Jósefsspítala. Fasteignirnar voru auglýstar til sölu á síðasta ári.

„Meðal annars hafa viðræður milli bæjarins og ríkisins snúist um beiðni bæjaryfirvalda um að sérstök forvalsnefnd verði sett á laggirnar um framtíðarhlutverk fasteignanna. Þeirri ósk var hafnað af hálfu ríkisins. Í kjölfar þessa hyggst bæjarstjórn Hafnarfjarðar nú óska eftir formlegum viðræðum um kaup á hlut ríkisins. Þannig yrði tryggt að bærinn hefði forræði yfir eignunum og gæti tryggt að þær kæmust í virka notkun í þágu nærsamfélagsins. Tillagan verður lögð fram til umræðu og afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar á miðvikudaginn 20. janúar,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Líklegt að öllum tilboðum verði hafnað

Hæsta boð í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði hljóðaði upp á um 23 prósent af fasteignamati hússins. Ríkiskaup annast sölu hússins sem er í eigu Hafnarfjarðarbæjar og ríkisins. Upphæðin kom mér ekki á óvart, segir bæjarstjóri Hafnarfjarðar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×