Sport

Hafdís vann til fernra gullverðlauna | Tvöfalt aldursflokkamet Sindra

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hafdís vann til fernra gullverðlauna í dag.
Hafdís vann til fernra gullverðlauna í dag. Vísir/Auðunn
Keppni er lokið á fyrri degi 88. Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum sem fer fram á Kaplakrikavelli um helgina.

Það er óhætt að segja að Hafdís Sigurðardóttir, UFA, hafi verið kona dagsins.

Eins og greint var frá fyrr í dag vann hún til gullverðlauna í langstökki og 100m hlaupi og Hafdís bætti svo tveimur gullverðlaunum við með því að sigra í 400m hlaupi, auk þess sem hún var hluti af sigurliði UFA í 4x100m boðhlaupi.

Hafdís hljóp 400 metrana á 54,16 sekúndum og setti þar með mótsmet, en hin 14 ára Þórdís Eva Steinsdóttir, FH, kom næst í mark á 56,87 sekúndum. Steinunn Erla Davíðsdóttir, UFA, hafnaði í 3. sæti á tímanum 57,98 sekúndum.

Sveit UFA í 4x100m boðhlaupi kom í mark á 48,42 sekúndum, en A sveit ÍR (48,76) og Sveit FH (49,89) komu næstar.

Sveit ÍR varð hlutskörpust í 4x100m boðhlaupi karla, en hún setti mótsmet með því að koma í mark 42,47 sekúndum. Sveitir UMSS og UFA komu næstar á tímunum 43,38 og 44,56 sekúndum.

Aníta Hinriksdóttir vann öruggan sigur í 1500m hlaupi kvenna.Vísir/Daníel
ÍR-ingurinn Aníta Hinriksdóttir sigraði í 1500m hlaupi á tímanum 4:27,93 mínútum. María Birkisdóttir, USÚ, kom næst í mark á 4:53,89 mínutum og Guðlaug Edda Hannesdóttir, Fjölnir, hafnaði í þriðja sæti á tímanum 4:54,87.

ÍR-ingar röðuðu sér í þrjú efstu sætin í 1500m hlaupi karla. Hlynur Andrésson kom fyrstur í mark á 3:55,94 mínútum, en þeir Sæmundur Ólafsson (4:06,20) og Daníel Freyr Garðarsson (4:06,73) komu næstir.

Ásdís Hjálmsdóttir kastaði 55,51 metra í dag.Vísir/AFP
Ásdís Hjálmsdóttir, Ármanni, vann öruggan sigur í spjótkasti kvenna, en hún kastaði spjótinu lengst 55,51 metra. Ásdís á Íslandsmetið í greinni sem hún setti á Ólympíuleikunum í London fyrir tveimur árum, en þá kastaði hún spjótinu 62,77 metra.

FH-ingurinn Thea Imani Sturludóttir hafnaði í öðru sæti (41,74) og Ásgerður Jana Ágústsdóttir, UFA, í því þriðja (37,63).

Blikinn Sindri Hrafn Guðmundsson hafði sigur í karlaflokki, en hann kastaði spjótinu 77,28 metra. Með kastinu setti Sindri tvöfalt aldursflokkamet, bæði í flokki 18-19 ára og 20-22 ára.

Guðmundur Sverrisson, ÍR, hafnaði í öðru sæti með kasti upp á 76,47 metra og Guðmundur Hólmar Jónsson, Ármanni, í því þriðja, en hann kastaði spjótinu 68,58 metra.

ÍR-ingurinn Ívar Kristinn Jasonarson bar sigur úr býtum í 400m hlaupi karla, en hann kom í mark á 49,33 sekúndum, rúmri sekúndu á undan Kristni Þór Kristinssyni (50,48) úr HSK/Umf. Selfossi. Daníel Þórarinsson kom þriðji í mark á 50,51 sekúndum.

Kristinn Torfason vann sigur í langstökki karla.
Í langstökki karla sigraði Kristinn Torfason, FH, en hann stökk 7,23 metra. ÍR-ingarnir Einar Daði Lárusson (6,91m) og Juan Ramón Borges Bosque (6,67m) röðuðu sér í næstu sæti.

Hermann Þór Haraldsson, FH, og Einar Daði Lárusson, ÍR, deildu gullverðlaununum í hástökki karla, en þeir stukku báðir 1,96 metra. Styrmir Dan Steingrímsson, HSK/Umf. Selfossi, fékk bronsverðlaun fyrir stökk upp á 1,93 metra.

Rakel Ósk Dýrfjörð Björnsdóttir, UFA, sigraði í stangarstökki kvenna, en hún lyfti sér yfir 3,42 metra.

ÍR-ingurinn Auður María Óskarsdóttir gerði slíkt hið sama en Rakel féll gullið þar sem hún fór yfir í fyrstu tilraun. Bronsverðlaunin féllu Bogey Ragnheiði Leósdóttir, ÍR, í skaut, en hún lyfti sér yfir 3,32 metra.

Keppni heldur áfram á morgun.

Upplýsingar um sigurvegara eru fengnar frá FRÍ og upplýsingar um mótsmet frá mbl.is/sport.


Tengdar fréttir

Öruggur sigur Hilmars

Nú stendur yfir keppni á 88. Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði. Alls voru rúmlega 180 keppendur skráðir til leiks, en þeir koma frá 13 félögum og samböndum.

Tvöfaldur sigur Hafdísar

Hafdís Sigurðardóttir, UFA, varð hlutskörpust í langstökkskeppninni í kvennaflokki á 88. Meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fer fram um helgina á Kaplakrikavelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×