Sport

Hafdís er ólétt og missir af næsta keppnisári

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hafdís í langstökkinu þar sem hún er Íslandsmethafi.
Hafdís í langstökkinu þar sem hún er Íslandsmethafi. vísir/epa
Ein fremsta frjálsíþróttakona landsins, Hafdís Sigurðardóttir, verður ekki með á komandi keppnisári þar sem hún er ólétt og á von á sér næsta sumar.

Þetta staðfestir Hafdís í samtali við Morgunblaðið í dag.

Hún var nálægt því að komast inn á ÓL í Ríó síðasta sumar og segir í viðtalinu að stefnan hafi verið að huga að barneignum eftir leikana.

Þó svo hún sé frá núna næsta árið þá hefur Hafdís ekki sagt skilið við íþróttina. Hún er að þjálfa og ætlar sér á fullt aftur eftir barnsburð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×