Sport

Hafdís: Frábært að fá gull í fyrstu grein

Ingvi Þór Sæmundsson á Laugardalsvelli skrifar
Hafdís vann langstökkið með nokkrum yfirburðum.
Hafdís vann langstökkið með nokkrum yfirburðum. vísir/daníel
Hafdís Sigurðardóttir bar sigur úr býtum í langstökki á 16. Smáþjóðaleikunum í dag.

Hafdís var nokkuð öruggur sigurvegari en besta stökk hennar var 6,50 metrar en meðvindur var +5,8. Af þeim sökum fær hún stökkið ekki skráð sem mótsmet á Smáþjóðaleikunum. Irene Charalambous frá Kýpur á metið sem er 6,38 metrar.

Þetta eru önnur gullverðlaunin sem Hafdís vinnur til á Smáþjóðaleikum og 11. verðlaunapeningurinn í heildina.

"Ég er nokkuð ánægð með daginn, það sem af er. Það er frábært að fá gull í fyrstu grein og ágætis árangur en veðrið setti strik í reikninginn," sagði Hafdís sem hefur ekki lokið keppni á Smáþjóðaleikunum í ár.

Þingeyingurinn á eftir að keppa í 100 metra hlaupi seinna í kvöld og svo í 4x100 metra boðhlaupi og 4x400 metra boðhlaupi á laugardaginn. En hvað tekur við hjá Hafdísi eftir leikana?

"Það er væntanlega Evrópubikarmót með landsliðinu seinna í þessum mánuði og svo hitt og þetta - eitthvað sem er ekki komið á teikniborðið ennþá."

Hafdís segir að gullverðlaunin í langstökkinu gefi henni byr undir báða vængi fyrir framhaldið.

"Jú, þetta gerir það. Ég er bara nokkuð sátt, hefði viljað fara aðeins lengra en maður getur ekki alltaf fengið allt sem maður vill," sagði Hafdís að lokum.


Tengdar fréttir

Ásdís: Lofar góðu fyrir framhaldið

Ásdís Hjálmsdóttir vann nú rétt í þessu til gullverðlauna í spjótkasti á Smáþjóðaleikunum sem standa nú yfir í Laugardalnum.

Aníta: Fór of hægt af stað

Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR, varð að gera sér 2. sætið að góðu í 800 metra hlaupi á 16. Smáþjóðaleikunum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×