Innlent

Hafði endurtekið kynferðismök við fjórtán ára stúlku en þarf ekki að sitja inni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Samskipti stúlkunnar og mannsins fóru fram á Skype.
Samskipti stúlkunnar og mannsins fóru fram á Skype. Vísir/Valli
29 ára karlmaður var dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára stúlku. Karlmaðurinn játaði að hafa verið í samskiptum við stúlkuna með það fyrir augum að sofa hjá henni. Hann neitaði þó að hafa vitað hve ung hún var í fyrstu skiptin sem þau sváfu saman. 

Stúlkan og maðurinn tóku tal saman á einkamálasíðu og færðust samskiptin yfir á Skype. Stúlkan sagðist hafa sýnt manninum áhuga og hann henni sömuleiðis sem aðrir gerðu ekki. Hún hefði þó verið full efasemda um að hitta hann en eftir að hafa smakkað áfengi í fyrsta skipti hefðu þau hist og stundað kynferðismök í bíl hans.

Sagðist ekki hafa kveikt á tölunni

Samskipti stúlkunnar og mannsins voru í maí og júní 2013. Viðurkenndi maðurinn að hafa haft kynferðismök við stúlkuna fimm sinnum en stúlkan taldi það hafa verið nokkrum sinnum til viðbótar við það. Hann þvertók fyrir að hafa vitað aldur hennar fyrr en eftir að hafa sofið hjá henni tvisvar. Hann viðurkenndi þó að hafa gert það í þrígang eftir að hún sagði honum aldur sinn, fjórtán ár.

Fæðingarár stúlkunnar kom fram í notendanafni stúlkunnar á Skype en maðurinn sagðist ekki hafa lagt neina merkingu í það enda væru alls konar tölur sem fólk notaði í notendanöfn. Á Facebook-síðu stúlkunnar stóð að hún væri nítján ára. Stúlkan sagðist hafa greint honum frá aldri sínum fyrir þeirra fyrsta hitting, hún mundi þó ekki hvenær, en maðurinn þvertók fyrir það. Það hefði ekki verið fyrr en eftir að þau hefðu hist tvisvar. Þá hefði hún sagst ekki vilja ljúga til um aldur sinn.

Skype samskipti stúlkunnar og mannsins voru lögð fram en af þeim mátti ekki ráða að stúlkan hafi sagt manninum hve gömul hún væri. Hún gerði það hins vegar um miðjan júnímánuð. Dóminum þótt ekki óvarlegt að leggja til grundvallar í málinu að manninum hefði ekki verið ljós aldur stúlkunnar fyrr en eftir að þau höfðu hist tvisvar og stundað kynlíf. Ekki væri hægt að fullyrða að maðurinn hefði skilið töluna í notendanafni stúlkunnar á Skype sem fæðingarár hennar. 

800 þúsund krónur í bætur

Var það mat dómsins að framburður stúlkunnar að hún hefði sagt manninum að hún væri fjórtán ára áður en þau hittust í fyrsta sinn hafi ekki þá stoð í gögnum málsins að það nægi gegn eindreginni neitun ákærða. Var hann því sýknaður af þeirri háttsemi að hafa haft samræði og önnur kynferðismök við stúlkuna vitandi að hún væri fjórtán ára gömul.

Hins vegar játaði hann að hafa haft samskipti við stúlkuna í gegnum Skype og síma til að hafa samræði við hana í að minnsta kosti þrjú skipti vitandi að hún væri fjórtán ára gömul. Var hann dæmdur fyrir brotið. Þá þarf hann að greiða henni 800 þúsund krónur í miskabætur en móðir stúlkunnar hafði farið fram á 2,5 milljónir króna í bætur fyrir hönd ófjárráða dóttur sinnar.

Stúlkan gaf fyrst skýrslu í málinu í Barnahúsi í nóvember 2013. Ákærði var ekki yfirheyrður fyrr en í september 2014. Ákæra var gefin út í málinu í maí 2015 og dómur féll svo í vikunni. Þrjú ár eru því liðin frá því stúlkan leitaði til barnaverndaryfirvalda.
Vegna þessara óútskýrðu tafa á málinu, eins og segir í dóminum, ákvað héraðsdómur að skilorðsbinda dóminn.

Dóminn í heild má lesa hér.




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×