Viðskipti innlent

Hafa unnið að komu H&M í um fjögur ár

Haraldur Guðmundsson skrifar
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri fasteignafélagsins Regins, eiganda Smáralindar.
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri fasteignafélagsins Regins, eiganda Smáralindar. Vísir/GVA
Stjórnendur fasteignafélagsins Regins hafa unnið að komu H&M hingað til lands í rúmlega þrjú og hálft ár. Reginn, sem á meðal annars Smáralindina, eyddi „miklum fjármunum“ í að útbúa vönduð gögn til að selja sænska fatarisanum hugmyndina um að opna hér á landi. Þá reyndi félagið að fá H&M til að opna í verslunarmiðstöðinni, í miðbæ Reykjavíkur og á Akureyri áður en kæmi að Kringlunni.

Þetta segir Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, í viðtali við Viðskiptablaðið í dag. Helgi segir þar að fasteignafélagið hafi fengið alþjóðlegan ráðgjafa til að aðstoða fyrirtækið við að sannfæra forsvarsmenn H&M.

„Við sögðum við þá: Þið byrjið í Smáralind, þið komið inn í miðbæ næst, við eigum verslunarrýmið þar, komið svo í Kringluna og svo til Akureyrar. [...] Auðvitað reyndum við að fá þá til að koma í Kringluna seinast, það gekk ekki alveg, en þeir keyptu þessa hugmynd,“ segir Helgi. Kringlan er að stærstum hluta í eigu fasteignafélagsins Reitir, samkeppnisaðila Regins.

Áður en Reginn tilkynnti í júlí síðastliðnum um samkomulagið við H&M hafði verið þrálátur orðrómur um að sænska fataverslunin myndi opna í Smáralind. Stjórnendur Regins og Smáralindar þvertóku aftur á móti fyrir það að viðræður væru í gangi. DV greindi svo frá áformum H&M hér á landi í apríl í fyrra og að formlegar viðræður hefðu hafist skömmu áður. Þremur mánuðum síðar tilkynnti Reginn um opnun H&M í Smáralind og á Hafnartorgi í miðbæ Reykjavíkur og síðar kom í ljós að þriðja verslunin yrði opnuð í Kringlunni.

„Svo allt í einu gerist það fyrir tæpum tveimur árum síðan að við verðum vör við að eitthvað er að gerast. Þá fórum við að heyra frá aðilum hérna á markaðnum að menn voru byrjaðir að vera varir við H&M. Þá voru okkar kynningar og okkar þrýstingur kominn inn á stjórnarborðið hjá H&M og þá gerðist allt mjög hratt, þeir keyptu hugmyndina og komu til Íslands,“ segir Helgi.

„Við náðum ágætum samningum að okkar mati, þetta eru langir samningar og hagstæðir, við erum sátt við það. Að ná hérna inn flaggskipinu í Smáralind, það var sigurinn. Hérna verður stærsta verslunin, síðan kemur verslunin í Kringlunni og síðan miðbærinn, þannig að þeir koma ofboðslega sterkt inn á markaðinn.“


Tengdar fréttir

H&M opnar síðsumars 2017

Von er á tveimur H&M verslunum í Smáralind og á Hafnartorgi á næsta ári.

H&M á Íslandi byrjar að ráða fólk

Sænska verslunarkeðjan H&M sem mun opna tvær verslanir hér á landi á þessu ári annars vegar og hins vegar á því næsta hefur samið við ráðningarfyrirtækið Capacent um ráðningar starfsfólks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×