Erlent

Hafa lokað birgðaleið hersins til Aleppo

Samúel Karl Ólason skrifar
Bardagar í og við Aleppo hafa verið harðir undanfarnar vikur.
Bardagar í og við Aleppo hafa verið harðir undanfarnar vikur. Vísir/AFP
Vígamenn Íslamska ríkisins og annarra samtaka íslamista hafa nú lokarð mikilvægari birgðaleið stjórnarhers Sýrlands til borgarinnar Aleppo. Undanfarnar vikur hefur stjórnarherinn, studdur af Rússum, Íran og Hezbollah, sótt fram gegn uppreisnar- og vígahópum norður af borginni.

Sókn ISIS mun líklega hægja á sókn hersins og jafnvel stöðva hana, takist ekki að ná birgðaleiðinni fljótt aftur. Þar að auki mun tap birgðaleiðarinnar gera líf almennra borgara í Aleppo verra. Draga mun enn frekar úr aðgengi þeirra að nauðsynjum eins og mat og vatni.

Vígamennirnir hófu í morgun sókn að bænum Khanaser, sem birgðaleiðin umrædda liggur í gegnum. Bærinn er nú nærri umkringdur og hafa nærliggjandi þorp fallið til ISIS.

AFP fréttaveitan hefur eftir forsvarsmanni Syrian Observatory for Human Rights að vígamennirnir komi að mestu frá Kákasusfjöllum og vesturhluta Kína, sem tilheyri samtökunum Jund al-Aqsa. Þeir hafi gert skyndisókn suður af Khanaser og í kjölfar þess hafi ISIS gert árás á bæinn.

Síðustu tvö ár hafa þúsundir erlendra vígamanna gengið til liðs við ISISAl-Nusra Front (al-Qaeda í Sýrlandi) og Jund al-Aqsa, sem voru stofnuð sem nokkurs konar systursamtök Nusra Front. Seinna slitnaði upp úr samstarfi samtakanna, meðal annars vegna deilna Nusra Front og ISIS.

Þetta er í minnst þriðja sinn á þremur árum sem birgðaleiðin fellur úr höndum stjórnarhersins. Herinn hefur þó alltaf áður náð henni aftur.

Hægt er að fylgjast með framvindu mála í Sýrlandi á korti hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×