Erlent

Hafa girt af svæði í kringum eyju í skerjagarðinum

Atli Ísleifsson skrifar
Sænski herinn hóf leit að kafbát á föstudaginn.
Sænski herinn hóf leit að kafbát á föstudaginn. Vísir/AFP
Sænski sjóherinn hefur girt af svæði í kringjum eyjuna Nåttarö í suðurhluta skerjagarðsins í kringum sænsku höfuðborgina Stokkhólm.

Sænskir fjölmiðlar hafa greint frá því að skip sjóhersins girði nú af svæði og hafi fyrirskipað öðrum skipum að halda sig í tíu kílómetra fjarlægð frá svæðinu hið minnsta. Þá hefur öllu flugi um leitarsvæðið verið bannað fram á föstudag.

Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, reyndi að draga úr atburðunum á fréttamannafundi sem hann hélt með Alexander Stubb, forsætisráðherra Finnlands, fyrr í dag. „Við framkvæmum neðansjávarleit í skerjagerðinum í Stokkhólmi, ekki kafbátaleit,“ sagði forsætisráðherrann.

Löfven sagði Svía hafa orðið vitni að aukinni rússneskri umferð síðustu mánuði, en að það  sé ekki ástæða til að hafa of miklar áhyggjur.

Fyrr í dag kölluðu rússneskir fjölmiðlar leit sænska sjóhersins í skerjagarðinum „sænska æfingu“, auk þess að rússnesk yfirvöld héldu því fram að kafbáturinn væri mögulega hollenskur. Hollendingar hafa þó neitað slíkum fullyrðingum.

Að sögn sænska ríkissjónvarpsins hefur sendiráð Rússlands í Stokkhólmi ekki vilja tjá sig um málið.


Tengdar fréttir

Hafna fullyrðingum um kafbát í vanda

Leit sænska sjóhersins að kafbáti í sænska Skerjagarðinum hefur engan árangur borið. Talið er að kafbáturinn sé rússneskur og eigi við einhvers konar vélarbilun að stríða en Rússar vísa þessum fullyrðingum á bug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×