Lífið

Hafa gaman af spuna og líka gömlum sálmum

Baldvin Þormóðsson skrifar
Félagarnir ákveða rosa lítið hvernig þeir ætla að gera hlutina, þeir bara gerast.
Félagarnir ákveða rosa lítið hvernig þeir ætla að gera hlutina, þeir bara gerast. mynd/aðsend
„Þetta verður svolítið blönduð efnisskrá,“ segir organistinn Eyþór Ingi Jónsson en hann kemur fram ásamt tenórnum Jóni Þorsteinssyni á síðustu Sumartónleikum sumarsins í Akureyrarkirkju. Þeir félagar munu flytja íslenska sálma og söngverk eftir J.S. Bach og G.F. Händel.

„Síðan endum við þetta á því sem við höfum oft best gert áður og leikum okkur með gamla íslenska sálma,“ segir Eyþór Ingi sem hefur alltaf haft gaman af spuna í tónlist.

„Við ákveðum rosa lítið hvernig við ætlum að gera hlutina, þeir bara gerast,“ segir hann og hlær en tónlistarmennirnir tveir eru ekki óvanir því að koma fram saman. „Það hefur alltaf gengið rosalega vel, rosalega góð aðsókn alltaf.“

Eyþór Ingi er fæddur og uppalinn í Dalasýslu þar sem hann hóf tónlistarmenntun sína sex ára gamall en auk þess að leggja áherslu á orgelleik í námi sínu hefur Eyþór lagt mikla áherslu á kórstjórn og stjórnar bæði Kór Akureyrarkirkju og Kammerkórnum Hymnodiu. Það má því með sanni segja að líf Eyþórs snúist um tónlist.

„Maður vinnur við þetta alla daga og svo er þetta einmitt áhugamálið líka, það er ekkert öðruvísi,“ segir hann.

Á tónleikunum í kvöld mega áhorfendur búast við að Eyþór og Jón taki upp á einhverju óvæntu en þeir notast mikið við sálmabók frá árinu 1945.

„Við tökum mikið sálma sem hafa ekki verið sungnir seinustu áratugi, við blöndum þessu svolítið saman,“ segir Eyþór Ingi. „Við erum ekki mikið í að spila og syngja nýju sálmana, sem eru yngri en 100 ára, við erum meira í eldri gerðinni.“

Tónleikarnir fara fram í Akureyrarkirkju sunnudaginn 27. júlí klukkan 17.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×