Handbolti

Hafa gaman af fótboltafortíð nýja íslenska handboltamannsins síns

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viggó Kristjánsson í leik með Gróttu í vetur.
Viggó Kristjánsson í leik með Gróttu í vetur. Vísir/Ernir
Viggó Kristjánsson er nýjasti íslenski leikmaðurinn í dönsku handboltadeildinni en hann hefur gengið frá samningi um að spila með Randers HH á næstu leiktíð.

Staðarblaðið Randers Amtsavis segir frá nýja leikmanni handboltaliðsins og gera líka mikið úr skemmtilegri tengingu Viggó og Ólafs Kristjánssonar, nýja þjálfara fótboltaliðs Randers.

Viggó fór á kostum með Gróttu síðasta vetur þar sem hann var með 117 mörk í 27 leikjum í Olís-deildinni eða 4,3 mörk að meðaltali í leik. Gróttuliðið var nýliði í deildinni en náði engu að síður fimmta sæti auk þess að komast í bikarúrslitaleikinn.

„Viggó Kristjánsson hefur skorað mikið af mörkum á Íslandi og við teljum að hann geti líka skorað mörk fyrir okkur. Hann er líka góður sendingamaður sem hefur gott auga fyrir línunni. Við þekkjum líka til Íslendinga og þeirra góða sigurhugarfars og metnað fyrir æfingum. Ég er viss um að hann og ná vel saman," sagði Jesper Holm þjálfari Randers HH við Randers Amtsavis.

Blaðið segir einnig frá því að Viggó hafi 19 ára gamall valið fótboltann og að hann hafi þá spilað fyrir Ólaf Kristjánsson hjá Breiðabliki. Ólafur er einmitt nýr þjálfari fótboltaliðs Randers. Nú fjórum árum síðar hefur Viggó snúið aftur í handboltann með góðum árangri.

Viggó verður ekki eini íslenski leikmaðurinn hjá Randers HH því áður hafði liðið fengið til sín markvörðinn Arnór Freyr Stefánsson frá ÍR. Arnór Freyr og Viggó hafa sama umboðsmann en þjálfarinn tekur það fram að það sé nú ekki stefnan að fá bara til sín íslenska leikmenn.

„Þetta var ekkert neyðarúrræði. Ég hef haft tækifæri til að sjá marga leiki með Viggó Kristjánssyni á myndböndum og ég hef mjög góða mynd af því hvað hann getur gert og hvað hann getur ekki. Það er ljóst að hann þarf tíma til að venjast nýju landi, nýrri menningu og nýju liði en ég er viss um að hann verður góður leikmaður fyrir okkur," sagði Jesper Holm um Viggó Kristjánsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×