Lífið

Hafa eytt yfir ellefu milljónum í lýtaaðgerðir til þess að líkjast Jordan: „Erum að lifa drauminn“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þær mæðgur fara sínar eigin leiðir.
Þær mæðgur fara sínar eigin leiðir. Myndir/New Dog Media
Mæðgurnar Georgia Clark, 38 ára, og Kayla Morris, 20 ára, hafa eytt yfir ellefu milljónum í lýtaaðgerðir að það til þess að líkjast Katie Price.

Katie Price, betur þekkt sem Jordan, er þekkt módel sem komst upp á sjónvarsviðið í Bretlandi fyrir um áratug. Hún var til að mynda gift söngvaranum Peter Andre á árunum 2005-2009.

Kayla hefur fjármagnað allar aðgerðirnar hjá þeim mæðgum og það með því að starfa á strippstað. Hún fékk einnig fjárhagslegan stuðning frá góðvini sínum sem erlendir miðlar vilja kalla „sugardaddy“.

Báðar hafa þær farið ítrekað í brjóstastækkanir, tannhvítnun og botox.

„Þegar hún sagði mér að hana langaði í brjóstastækkun og í lýtaaðgerðir yfirleitt var ég ótrúlega glöð, ég vildi að hún yrði akkúrat sú manneskja. Ég er svo stolt af henni,“ segir Georgia Clark.

Kayla virðist vera saman hvernig hún fjármagnar aðgerðirnar.

„Henni er alveg sama þó hún þurfi að fækka fötum eða eiga svona „sugardaddy“. Við erum að lifa drauminn.“

Myndir/New Dog Media
Myndir/New Dog Media
Myndir/New Dog Media





Fleiri fréttir

Sjá meira


×