Innlent

Hafa áhyggjur af ferðamönnum vegna Kötlugoss

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lögregluyfirvöld á Suðurlandi hafa áhyggjur af því að rýmingaráætlanir vegna Kötlugoss taki ekki til aukins fjölda ferðamanna hér á landi. Auknar líkur eru taldar á Kötlugosi eftir skjálftahrinu síðustu daga.

„Það eru breyttir tímar í dag og það sem við höfum mestar áhyggjur af er að þegar þessi fjöll eru að gjósa eru gjarnan ferðamenn að flækjast jafnvel ofan á þeim,“ sagði Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurlandi í samtali við Reykjavík síðdegis í dag.

Talið er að líkur á eldgosi í Kötlu séu meiri en venjulega um þessar stundir samkvæmt orðsendingu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra þar sem greint er frá fundi í vísindaráði almannavarna.

Jarðskjálftavirkni hefur verið óvenju mikil frá því í ágúst í fyrra með þremur skjálftum stærri en M4,0 og mörgum skjálftum stærri en M3,0.

Við Kötlugos geta mikil jökulhlaup ruðst fram Mýrdalssand, Sólheimasand og Markarfljótsaura, allt eftir því hvar staðsetning eldgossins er. Til eru ítarlegar rýmingaráætlanir sem æfðar eru en Oddur hefur áhyggjur af því að þeir endurspegli ekki þann fjölda ferðamanna sem sækja svæðið sem um ræðir heim.

„Það er alveg ný staða og þegar rýmingaráætlun Kötlu var gerð voru kannski þrjú til fjögur hundruð manns sem gistu á nóttu til í Vík og með húsnæði til að taka við þeim þegar átti að rýma neðri hluta bæjarins. Nú eru á hverri nóttu yfir vetrarmánuðina kannski ellefu hundruð manns sem eru þarna. Það er orðið mun umsvifameiri rýming sem þarf að fara í,“ sagði Oddur.

Unnið er að því að uppfæra rýmingaráætlunina í samræmi við þetta en meðal annars er gert ráð fyrir því að sms-skilaboð verði send á alla gsm-síma á því svæði sem þyrfti að rýma komi til Kötlugoss.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×