Hafa áhyggjur af búfjárbyltingunni 18. mars 2010 02:00
Framleiðsla og neysla á kjöti hefur þrefaldast á síðustu þremur áratugum og allt stefnir í að hún tvöfaldist frá því sem nú er til ársins 2050, að því er fram kemur í nýrri rannsókn sem vitnað er í á vefmiðlinum Science Daily. „Búfjáriðnaðurinn er risavaxinn og vex hratt," segir Harold A. Mooney líffræðingur, einn þeirra sem stóðu að rannsókninni. „Þetta er í fyrsta skipti sem við skoðum áhrif búfjárframleiðslu með tilliti til félagslegra áhrifa, umhverfisáhrifa og efnahagslegra áhrifa, auk áhrifa á heilsufar og umhverfið. Við leituðum leiða til að draga úr neikvæðum áhrifum iðnaðarins og leggjum áherslu á jákvæðar hliðar," segir Mooney. Í niðurstöðum hópsins kemur fram að búfjárstofninn í heiminum öllum telur um 1.700 milljónir dýra. Um 1.000 milljónir jarðarbúa hafa atvinnu sína af búfjárframleiðslu eða tengdum atvinnugreinum. Aukin búfjárframleiðsla fjölgi þó ekki endilega störfunum þar sem hún kalli á stærri bú og gangi nærri litlum framleiðendum. Um þriðjungur af prótíni jarðarbúa kemur úr nautakjöti, fuglakjöti, svínakjöti og öðrum búfjárafurðum. Neyslan skiptist þó alls ekki jafnt niður á þjóðir heims, samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar. Áhrif búfjár á umhverfið eru umtalsverð að mati vísindamannanna. Mikið af skóglendi hefur til að mynda verið rutt til að fá landsvæði fyrir skepnurnar. Að auki þurfi mikinn áburð, skordýraeitur og olíu til að rækta fæðið. Þá er úrgangur frá búfénaði áhyggjuefni. „Dýrin nýta aðeins um þriðjung þeirra næringarefna sem þau neyta, og því er úrgangurinn frá þeim mjög mengandi. Það er þekkt vandamál sem sýnt hefur verið fram á með rannsóknum frá Kína, Indlandi, Bandaríkjunum og Danmörku," segir í skýrslu vísindamannanna. „Stór hluti vandans liggur hjá neytendunum," segir Fritz Schneider, annar vísindamannanna sem unnu að rannsókninni. „Fólk mun ekki hætta að borða kjöt, en ég vona að því meira sem fólk lærir um áhrifin þeim mun líklegra sé það til að breyta venjum sínum." brjann@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira