Innlent

Hættur þingmennsku

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Árni Þór Sigurðsson.
Árni Þór Sigurðsson. Vísir/Daníel
Árni Þór Sigurðsson, varaformaður þingflokks Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, hefur sagt af sér þingmennsku. Hann tekur sem kunnugt er við starfi sendiherra á næstunni. Ekki hefur verið greint frá því hvar áætlað sé að Árni Þór muni starfa.

„Ég hef starfað við og aflað mér menntunar á sviði alþjóðamála og hugur minn hefur í vaxandi mæli beinst að þeim málaflokki. Það er persónuleg ákvörðun mín að söðla um og nýta menntun, reynslu og þekkingu mína á þessu sviði,“ segir í yfirlýsingu Árna Þórs til fjölmiðla.

„Snemma á þessu ári kom til álita að ég færi til starfa hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE. Í hæfnisferli sem slíkar alþjóðastofnanir gera, var ég metinn mjög vel hæfur til að gegna ábyrgðarstarfi og það hvatti mig áfram og færði mér einnig heim sanninn um að ég gæti gert gagn á sviði utanríkis- og alþjóðamála. Það er aðdragandi þess að ég fer nú til starfa í utanríkisráðuneytinu.“

Steinunn Þóra Árnadóttir, fyrsti varaþingmaður í Reykjavík norður, mun að óbreyttu taka sæti Árna Þórs. Hún er með meistaragráðu í fötlunarfræði.

Yfirlýsingin í heild sinni

Góðir félagar.

Ég hef í dag sagt af mér þingmennsku þar sem ég mun taka við starfi í utanríkisþjónustunni um næstu áramót. Ég vil nota þetta tækifæri og þakka samverkafólki mínu og vinum í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði fyrir langa, stranga en fyrst og fremst gefandi samfylgd. Um leið tel ég rétt að gera ykkur nánari grein fyrir aðdraganda málsins og hvernig það snýr að mér.

Undanfarin ár hefur starfsvettvangur minn á vettvangi Alþingis einkum verið utanríkis- og alþjóðamál. Allt síðasta kjörtímabil var ég formaður utanríkismálanefndar ásamt því að vera formaður þingmannanefndar EFTA. Um tíma átti ég líka sæti í Norðurlandaráði. Á vettvangi utanríkismála hef ég leitt starfið á Alþingi í málum sem okkur eru mikilvæg, eins og stefnumótun í málefnum Norðurslóða, langtímaáætlun í þróunarsamvinnu og viðurkenning á sjálfstæði Palestínu. Sú reynsla sem ég hef áunnið mér á þessum vettvangi hefur einnig kveikt áhuga minn á að starfa alfarið í þágu þessara mála.

Snemma á þessu ári kom til álita að ég færi til starfa hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE. Í hæfnisferli sem slíkar alþjóðastofnanir gera, var ég metinn mjög vel hæfur til að gegna ábyrgðarstarfi og það hvatti mig áfram og færði mér einnig heim sanninn um að ég gæti gert gagn á sviði utanríkis- og alþjóðamála. Það er aðdragandi þess að ég fer nú til starfa í utanríkisráðuneytinu.

Ég hef starfað við og aflað mér menntunar á sviði alþjóðamála og hugur minn hefur í vaxandi mæli beinst að þeim málaflokki. Það er persónuleg ákvörðun mín að söðla um og nýta menntun, reynslu og þekkingu mína á þessu sviði.

Ég vona að þessi skrif skýri fyrir ykkur hvernig málið liggur gagnvart mér. Þessi staða var ekki fyrir hendi þegar ég gaf kost á mér í forvali flokksins fyrir síðustu alþingiskosningar og fékk góðan stuðning félaganna. En allt hefur sinn tíma, og ég er þeirrar skoðunar að þetta sé góður tími til að skipta um starfsvettvang, sannfærður um að ég á fullt erindi í þau störf sem bíða mín, og að þingsæti VG í Reykjavíkurkjördæmi norður, sem ég hef skipað, verður vel fyllt af Steinunni Þóru Árnadóttur, sem ég óska alls velfarnaðar í nýju starfi.

Um leið og ég kveð ykkur að sinni, er aldrei að vita nema leiðir okkar eigi eftir að liggja saman síðar.

Með kveðju,

Árni Þór Sigurðsson


Tengdar fréttir

Geir H. Haarde skipaður sendiherra

Þá var Árni Þór Sigurðsson, alþingismaður og fyrrverandi formaður utanríkismálanefndar, einnig skipaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×