Golf

Hættur að velta mér upp úr þessu

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Getty
„Það er bara mikil tilhlökkun hjá manni, þetta er mótið sem sker úr hvaða kylfingur er bestur í höggleik hverju sinni á Íslandi,“ sagði Kristján Þór Einarsson, kylfingur úr GKJ, þegar blaðamaður Vísis ræddi við hann fyrr í dag fyrir Íslandsmótið sem hefst um helgina.

„Þeir hjá GKG eru búnir að vinna hörðum höndum að gera völlinn eins flottan og hægt er. Þeir eiga hrós skilið því heilt yfir lítur hann vel út fyrir utan stöku bletti þar sem augljóslega var mikill klaki yfir veturinn.“

Kristján Þór sem varð Íslandsmeistari í höggleik karla í Vestmannaeyjum fyrir fimm árum varð Íslandsmeistari í holukeppni fyrr á þessu ári og er efstur á Eimskipsmótaröðinni í ár.

„Holukeppni er allt annað fyrirkomulag og maður kemur með annað hugarfar heldur en í höggleiknum. Maður spilar mismunandi golf eftir því hvoru maður er að keppa í.“

Það vakti mikla athygli þegar Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari Íslands í golfi valdi Kristján ekki í landsliðið og var Kristján allt annað en ánægður með valið. Úlfar taldi að Kristján gæti ekki einbeitt sér að landsliðinu í verkefnin sem framundan væru en Kristján segist vera kominn yfir það.

„Þetta er gleymt og grafið mál og orðið gamalt í dag. Maður vill auðvitað standa sig sem best í öllum mótum og fyrir mótið er ég efstur á stigalistanum og markmiðið er að auka forskotið þar,“ sagði Kristján.


Tengdar fréttir

Var líklega samskiptavandamál

Formaður Golfklúbbsins Kjalar í Mosfellsbæ reiknar með að Kristján Þór Einarsson eigi afturkvæmt í landsliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×