Tónlist

Hættur á taugum og kominn í tónlist

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Sam Sheperd er spenntur fyrir að koma fram á Sónar.
Sam Sheperd er spenntur fyrir að koma fram á Sónar.
Það var í kjölfar þess að risastór Studer A80 Master Recorder skaut upp kollinum fyrir framan útidyrnar á heimili Sams Shepherd að hann byggði stúdíóið þar sem hann tók upp sína fyrstu breiðskífu, Elaenia. „Hann var svo stór að hann komst ekki inn um dyrnar. Í London rignir mikið, er vindasamt og grátt, þannig að ég varð að finna stúdíó sem allra fyrst til að koma honum inn. Til allra lukku fann ég húsnæði undir stúdíóið og flutti hann fljótlega þangað inn,“ segir Sam sem kemur fram undir nafninu Floating Points. Eftir að hafa komið upptöku­græjunum fyrir í húsnæðinu tók hann til við að taka upp sína fyrstu plötu sem kom út í nóvember á síðasta ári og hlaut góðar viðtökur og var meðal annars á lista Pitchfork yfir tuttugu bestu plötur síðasta árs.

Upphaflega var hugmynd hans að plötunni að hún yrði eitt langt lag en eftir ábendingar skipti hann tónlistinni niður í sjö lög. Nafn plötunnar og samnefnt titillag er rakið til draumfara tónlistarmannsins en Elaenia er fuglategund og dreymdi Sam að fugl af tegundinni festist í skógi eftir að hann hafði lesið bókina Sum: Forty Tales from the Afterlives eftir bandaríska taugasérfræðinginn David Eagleman en bókina fékk hann að gjöf frá aðdáanda eftir tónleika. Sam hafði þó gefið út tvær EP-skífur, nokkrar smáskífur og komið fram á tónleikum áður en breiðskífan leit dagsins ljós.

Sam stefndi þó ekki alla tíð á að gerast tónlistarmaður og hafði menntað sig talsvert áður en hann hellti sér út í tónlistina af fullum þunga þó svo að tónlistaráhuginn hafi lengi verið til staðar. „Ég lærði á píanó frá því ég var sjö ára, var í skólakórnum og byrjaði að semja mína eigin tónlist fyrir kórinn og svo safnaði ég líka plötum en hélt aldrei að ég yrði tónlistarmaður eða plötusnúður,“ útskýrir hann. „Ég held að þess vegna hafi ég kannski streist á móti svona lengi. Ég fór í háskóla og tók doktorsgráðu bara af því ég var að halda aftur af mér. Ég hélt að ég yrði vísindamaður en ekki tónlistarmaður en það rætist ekki,“ segir hann hlæjandi.

Sam segist spenntur fyrir komunni til landsins en hann spilar á Sónar í kvöld ásamt fjögurra manna bandi og segir hann að leikið verði efni af plötunni auk nýs efnis. „Helmingurinn verður dót sem fólk þekkir og hinn helmingurinn eitthvað sem enginn þekkir, en kannski mun enginn þekkja eldra dótið heldur,“ segir hann hlæjandi og hógvær. Honum finnst alltaf ákveðin áskorun fólgin í því að koma fram, hljóðheiminum á plötunni sé stjórnað með ýmsum tækjum og tólum og það geti verið erfitt að endurskapa hann á sviði. „Maður getur ekki haft þá stjórn án þess að koma með fullt af græjum og ég verð að takmarka það sem ég kem með mér og svo er líka bara ákveðinn hluti sem þú getur gert á sviði.“ Hann segir tónlistina því öðlast sitt eigið líf á sviðinu sem sé einnig hluti af skemmtuninni.

Tónleikarnir með Floating Points hefjast klukkan 22.10 og fara fram í SonarClub í Hörpu en lokadagur tónlistarhátíðarinnar er á laugardaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×