Erlent

Hættir við heimsókn til Bandaríkjanna eftir spennuþrungið símtal við Trump

Kjartan Kjartansson skrifar
Peña Nieto og Trump hittust á G20-leiðtogafundinum í Þýskalandi í sumar.
Peña Nieto og Trump hittust á G20-leiðtogafundinum í Þýskalandi í sumar. Vísir/AFP
Enrique Peña Nieto, forseti Mexíkó, hefur lagt hugmyndir um opinbera heimsókn til Bandaríkjanna á hilluna eftir að símtal hans og Donalds Trump Bandaríkjaforseta fór ekki að óskum í vikunni. Trump var ekki tilbúinn að viðurkenna afstöðu Mexíkóstjórnar um að hún ætli ekki að greiða fyrir vegg á landamærum landanna.

Landamæramúrinn var eitt helsta baráttumál Trump í kosningabaráttunni árið 2016. Þar fullyrti hann að Mexíkóar kæmu til með að greiða fyrir múrinn.

Eins og gefur að skilja hafa þær hugmyndir fallið í grýttan jarðveg hjá mexíkóskum stjórnvöldum. Peña Nieto blés meðal annars af fyrirhugaða heimsókn til Bandaríkjanna skömmu eftir að Trump tók við embætti vegna ágreinings um múrinn.

Segja Trump hafa verið pirraðan og við að missa þolinmæðina

Washington Post
segir að hugmyndir hafi verið uppi um að Peña Nieto myndi heimsækja Washington-borg í þessum mánuði eða þeim næsta. Embættismenn beggja landa hafi hins vegar sammælst um að gleyma þeim í bili eftir símtal forsetanna tveggja í vikunni.

Hvorugur þeirra er sagður hafa verið tilbúinn að gefa eftir þegar þeir ræddu saman í síma á þriðjudag. Þeir hafi eytt stórum hluta fimmtíu mínútna símtalsins í að ræða málefnið.

Blaðið hefur eftir mexíkóskum embættismanni að Trump hafi á vissum tímapunkti misst stjórn á skapi sínu við starfsbróður sinn. Bandarískir embættismenn lýsa því hins vegar þannig að Trump hafi verið pirraður og við það að missa þolinmæðina. Trump hafi talið það vera ósanngjart af Peña Nieto að ætlast til þess að hann viki frá hugmynd sinni um að láta Mexíkóa greiða fyrir múrinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×