Erlent

Hættir í kórnum frekar en að syngja við innsetningarathöfn Trumps

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
Chamberlin er viss um að flutningurinn muni hafa skaðleg áhrif á ímynd kórsins.
Chamberlin er viss um að flutningurinn muni hafa skaðleg áhrif á ímynd kórsins. Vísir/AFP
Jan Chamberlin, meðlimur kórsins the Mormon Tabernacle Choir, hefur tekið þá ákvörðun að hætta í kórnum vegna ákvörðunar stjórnenda hans um að flytja tónlist við innsetningarathöfn Donalds Trump nú í janúar. 

Chamberlin deildi uppsagnarbréfi sínu á Facebook-síðu sinni í vikunni. Hún lýsir því í bréfinu að með því að syngja við þetta tilefni sé kórinn að „leggja blessun sína yfir einræði og fasisma“. Hún upplifði sig illa svikna þegar hún frétti af því að kórinn hefði samþykkt að taka þátt í athöfninni.

„Frá því ákvörðunin var tilkynnt hef ég varið svefnlausum nóttum og dögum í sálarangist. Ég hef kynnt mér vel báðar hliðar málsins, beðið, talað við vini og fjölskyldu og leitað inn á við,“ segir Chamberlin meðal annars í stöðuuppfærslunni. 

Hún lýsir jafnframt yfir áhyggjum sínum af ímynd kórsins. 

„Hin dásamlega ímynd kórsins og samskiptanet hans mun hljóta mikinn skaða af og margt gott fólk í landinu og heiminum öllum upplifir sig illa svikið. Ég trúi því að héðan í frá muni boðskapur okkar ekki vera tekinn trúanlegur af þeim fjölda fólks sem hefur elskað okkur og dáð fyrir það sem við stóðum fyrir.“

Chamberlin segir að lokum að þótt ákvörðunin hafi verið erfið, þá sé samviska hennar hrein. 

Independent greinir frá því að teymi Trumps hafi gengið illa að ráða listamenn til þess að koma fram á innsetningarhátíð Trumps sem fer fram þann 20. janúar. Samkvæmt heimildarmönnum hefur starfsfólk úr herbúðum Trumps leitað á náðir ýmissa frægra listamanna án þess að hafa fengið jákvæð svör. Á meðal þessara listamanna eru Elton John, Andrea Bocelli, Ice T og Celine Dion.

Hins vegar hafa talsmenn Trumps dregið úr þessum sögusögnum og segjast ekki vilja fá stórstjörnur til þess að flytja tónlist við athöfnina, slíkt þyki ekki við hæfi. 

Dansflokkurinn Radio City Rockettes er bókaður til þess að dansa við innsetningarathöfnina en nokkrir meðlimir flokksins hafa lýst yfir gremju sinni vegna þess
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×