Innlent

Hættir hjá Strætó í haust

Borgarstjóri segir ekki albesta fyrirkomulagið að þingmaður sé stjórnarformaður Strætó. Því sé skiljanlegt að Ármann hyggist hætta.
Borgarstjóri segir ekki albesta fyrirkomulagið að þingmaður sé stjórnarformaður Strætó. Því sé skiljanlegt að Ármann hyggist hætta.

 Ármann Kr. Ólafsson, stjórnarformaður Strætó, hyggst segja stöðu sinni lausri áður en þing kemur saman í haust. Fundað var um málið á mánudag.



„Ég ætla mér ekki að gegna öllum stöðum að eilífu,“ segir hann. „Ég hætti sem forseti bæjar­stjórnar í Kópavogi fyrir nokkrum dögum og hafði alltaf hugsað mér að hætta sem stjórnarformaður Strætó áður en þing kemur saman á ný.“



Á fundi sem stjórn Strætó og bæjarstjórar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sátu á mánudag bar afsögn Ármanns á góma. Þó var ekkert ákveðið í þeim efnum. Þar var samþykkt tillaga um að óska eftir viðræðum við ríkisvaldið um þátttöku þess í kostnaði við almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu.



„Það er kannski ekki albesta fyrirkomulagið að þingmaður sé stjórnarformaður Strætó,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri. „Því er skiljanlegt að Ármann ætli að hætta þar sem hann er að setjast á þing í haust.“



Aðspurður hver eftirmaður Ármanns verði segir Vilhjálmur þá ákvörðun í höndum stjórnar Strætó. „Það er ekkert útilokað að hann komi úr Reykjavík.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×