Innlent

Hætti sem blaðamaður á Mbl.is eftir að frétt var tekin úr birtingu

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Charles Gittins, sem starfað hefur sem fréttamaður á Iceland Monitor á Mbl.is undanfarin tæp tvö ár, hætti störfum á miðlinum á miðvikudaginn. Ástæðan var ágreiningur milli hans og yfirstjórnar Árvakurs, útgáfufélags Mbl.is og Morgunblaðsins, vegna fréttaskrifa. 

Frétt sem Gittins skrifaði á Iceland Monitor á þriðjudaginn með fyrirsögninni „Cross Iceland of your list travellers advised“ var tekin úr birtingu af Kristni Tryggva Þorleifssyni, framkvæmdastjóra Mbl.is.

Varað við Íslandi

Í fréttinni var vísað í umfjöllun Business Insider sem nefndi Ísland sem einn þeirra áfangastaða sem vissara væri að forðast á næsta ári. Ísland sé einfaldlega orðið of töff. Ferðamenn séu fleiri en almennir borgarar. Í staðinn væri sniðugt að fara til Nýja-Sjálands og minnsta á líkindi landanna hvað við kemur jöklum, eldfjöllum og goshverum. 

Gittins var afar ósáttur við að fréttin væri tekin úr birtingu og hætti því störfum. Fyrir lá að hann myndi hætta fréttaskrifum um áramótin.

Gittins, sem vakið hefur athygli fyrir sjálfboðaliðastörf sín og hve hratt hann hefur lært íslensku, skrifaði í kveðjubréfi til samstarfsmanna að ágreiningur hefði orðið til þess að hann hætti störfum fyrr en ætlað var án þess þó að fara í þaula út í ástæðurnar. 

Kristinn Tryggvi Þorleifsson, framkvæmdastjóri Mbl.is og sá sem tók fréttina úr birtingu, vildi ekki svara því hver væri eiginlegur ritstjóri Iceland Monitor.

„Iceland Monitor er bara vefrit á Mbl.is,“ segir Kristinn. „Þú getur lesið um það á vefnum.“

Skellti á blaðamann

Ekki er að finna á Iceland Monitor hver sé fréttastjóri eða ritstjóri vefritsins. Nokkrir blaðamenn eru nefndir til sögunnar, þar á meðal Charles Gittins, auk framkvæmdastjórans Kristins. 

Aðspurður hvers vegna fréttin var tekin úr birtingu segist Kristinn ekki tjá sig um málefni einstakra starfsmanna. Var hann í framhaldinu tregur til að svara frekari spurningum blaðamanns og endaði á að skella á.

Flestir auglýsendur á Iceland Monitor, og öðrum íslenskum fréttasíðum á ensku, eru úr ferðamannabransanum. 

Ekki náðist í Charles Gittins við vinnslu fréttarinnar.

Uppfært klukkan 16:25

Við þetta má bæta að frétt um umfjöllun Business Insider var skrifuð á íslensku á Mbl.is klukkustund áður en sama frétt var skrifuð á Iceland Monitor, og síðar fjarlægð. Frétt Mbl.is lifir góðu lífi á vefnum



Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×