Erlent

Hætta æfingum með Bandaríkjunum í Suður-Kínahafi

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá sameiginlegri heræfingu ríkjanna sem stendur nú yfir í Filippseyjum.
Frá sameiginlegri heræfingu ríkjanna sem stendur nú yfir í Filippseyjum. Vísir/EPA
Varnarmálaráðherra Filippseyja hefur tilkynnt Bandaríkjunum að þeir hafi hætt við allar sameiginlega heræfingar í Suður-Kínahafi. Rodrigo Duterte, forseti landsins, hefur undanfarnar vikur verið mjög myrkur í máli gagnvart Bandaríkjunum. Yfirvöld Bandaríkjanna, Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafa gagnrýnt átak Duterte gegn fíkniefnum harðlega.

Minnst 3.600 manns hafa látið lífið vegna átaksins svokallaða á einungis þremur mánuðum.

Varnarmálaráðherrann Delfin Lorenzana sagði einnig í dag að yfirvöld Filippseyja vilja losna við 107 bandaríska hermenn sem safna upplýsingum í vígamenn í suðurhluta Filippseyja. Fyrst þarf filippseyski herinn að öðlast getu til að safna áðurnefndra upplýsinga.

Lorenzana sagði Filippseyjar geta lifað án hernaðaraðstoðar Bandaríkjanna sem samsvari um 50 til 100 milljóna dala á ári. Þess í stað ætli þeir að kaupa vopn frá Kína og Rússlandi.

Sjá einnig: Segir Obama að „fara til helvítis“.

Bandaríkin og Filippseyjar hafa haldið um 28 sameiginlegar heræfingar á ári. Duterte vill hætta öllum sameiginlegum heræfingum, ekki bara þeim í Suður-Kínahafi. Í ræðu í dag sagði forsetinn að það væri ekki hægt að koma fram við hann eins og dyramottu. Hann gæti auðveldlega snúið sér til Kína.

Duterte hefur skipað Lorenzana að ferðast til Kína og Rússlands til að ræða við ráðamenn þar um mögulegar vopnasölur.

AP fréttaveitan hefur eftir talsmanni Utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna að þeim hafi ekki borist opinber tilkynning um að Filippseyjar hafi hætt við æfingarnar. Hann segir Bandaríkin staðráðin í að standa við skuldbindingar sínar varðandi varnarsamning Bandaríkjanna og Filippseyja en ríkin hafa starfað saman í 65 ár.

Samvinna Filippseyja er Bandaríkjunum mikilvæg, sérstaklega vegna aukinna umsvifa og tilkalls Kína til um 90 prósenta af Suður-Kínahafi. Bandaríkin og Japan hafa stutt við bakið á Filippseyjum í deilum þeirra við Kína.


Tengdar fréttir

Duterte segist ekki geta drepið alla

Rodrigo Duterte segir að hann hafi ekki gert sér grein fyrir umfangi fíkniefnasölu í landinu áður en hann varð forseti.

Hefur drepið þúsundir

Rodrigo Duterte hefur verið forseti Filippseyja frá því í júní. Í herferð sinni gegn fíkniefnum og glæpum hefur hann látið drepa meira en þrjú þúsund manns.

Kallaði Obama hóruson

Rodrigo Duterte, forseti Filippseyja, varaði Obama við því að gagnrýni sig fyrir mannréttindabrot.

Enn versnar samband Duterte og Bandaríkjanna

Hinn umdeildi forseti Filippseyja, Rodrigo Duterte, lýsti því yfir í gær að fyrirhuguð heræfing í landinu þar sem Bandaríkjamenn og Filippseyski herinn taka þátt verði þær síðustu af slíkum toga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×