Innlent

Hætta á að börn efnaminni foreldra bíði lengur eftir heilbrigðisþjónustu

Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar
Sérstök hætta er á að börn efnaminni foreldra þurfi að bíða lengur eftir heilbrigðisþjónustu með tilkomu nýs greiðsluþátttökukerfis, að mati umboðsmanns barna, þar sem foreldrarnir hafa ekki tök á að leita til sérfræðilækna án tilvísunar. Þá leggjast læknar gegn frumvarpinu.

Velferðarnefnd Alþingis hefur nú til umsagnar frumvarp heilbrigðisráðherra um nýtt greiðsluþáttökukerfi fyrir heilbrigðisþjónustu. Fjölmargar athugasemdir hafa borist við frumvarpið meðal annars frá Læknafélagi Íslands.

„Ákveðinn hluti sjúklinga, við vitum ekki alveg hver stór en það virðist vera samt töluverður hluti þeirra sem leita eftir þjónustu, að þeir verði fyrir töluvert auknum útgjöldum. Maður veit ekki hvaða áhrif það hefur hvort að fólk muni þá draga þá að leita sér þjónustu, lágtekjufólk, vegna þess að það leitir í auknum kostnaði. Það mun leiða til aukinna heilbrigðisútgjalda síðar,“ segir Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands.

Þá gera hjúkrunarfræðingar einnig athugasemdir við frumvarpið svo og Sjúkratryggingar Íslands, Talmeinafræðingar og umboðsmaður barna svo nokkrir séu nefndir. Í athugasemd sinni segir umboðsmaður barna að ætla megi að tilvísanakerfi sem lagt verður á með frumvarpinu geti orðið til þess að börn þurfi að bíða lengur eftir þjónustu.

Sérstök hætta sé á því að börn efnaminni foreldra þurfi að bíða eftir þjónustu, þar sem foreldrar þeirra hafa ekki tök á því að leita til sérfræðilækna án tilvísunar. Læknafélagið leggst eindregið í umsögn sinni að frumvarpið verði samþykkt óbreytt

„Einfaldasta leiðin hefði kannski verið að gera breytingu á núverandi kerfi sem fæli það einfaldlega í sér að það lendi enginn í því að greiða hærri upphæð enn einhverja tiltekna,“ segir Þorbjörn. Þannig væri bara sett greiðsluþak inni í núverandi kerfi sem væri á bilinu 100 til 150 þúsund. „Það auðvitað útgrefur það að ríkissjóður eða Sjúkratryggingar þyrftu að leggja fram aukið fé,“ segir Þorbjörn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×