Handbolti

Hætt við handboltaleiki í Afríku vegna ebólu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Handknattleikssamband Afríku, CAHB, tilkynnti í dag að öllum leikjum á vegum sambandsins hafi verið frestað um óákveðinn tíma.

Er það gerta vegna ebólufaraldursins sem geisar í Vestur-Afríku. Sambandið tilkynnti að þetta hafi verið ákveðið eftir ráðleggingar Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO.

Enn fremur kom fram að ákvörðunin verði endurskoðuð um leið og ástandið batnar í álfunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×