Bíó og sjónvarp

Hætt við að leika Aaliyah

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ungstirnið Zendaya Coleman er hætt við að leika í kvikmynd um líf söngkonunnar Aaliyah frá Lifetime en Zendaya átti að leika aðalhlutverkið - sjálfa Aaliyah.

Talsverðir erfiðleikar hafa verið í vinnslu myndarinnar og erfitt hefur reynst að fá að nota tónlist Aaliyah en tónlistarkonan lést í flugslysi árið 2001. 

Þá er fjölskylda söngkonunnar ekki heldur sátt við gerð myndarinnar sem fjallar meðal annars um umdeilt og ólöglegt hjónaband hennar og tónlistarmannsins R. Kelly þegar Aaliyah var aðeins fimmtán ára. 

Myndin, sem ber titilinn Aaliyah: Princess of R&B, er byggð á ævisögunni Aaliyah: More Than a Woman eftir Christopher John Farley. Tökur áttu að hefjast í sumar en hefur nú verið frestað um ókominn tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×