Lífið

Hætt við að gera framhaldsmynd

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
Rooney Mara
Rooney Mara Vísir/getty
Aðdáendur Stieg Larsons þríleikjanna verða sennilega ekki sáttir með þessar fréttir, en leikkonan Rooney Mara sagði í samtali við sjónvarpsstöðina E! að ekki yrði gert framhald af kvikmyndinni The Girl With the Dragon Tattoo, en Mara fór með aðahlutverkið í þeirri mynd.

„Ég held að það sé ekki að fara að gerast. Mér finnst mjög leiðinlegt að það eigi ekki að gera framhald,“ sagði Mara.

Leikstjóri myndarinnar, Davið Fincher sagði í september að búið væri að gera handrit að framhaldsmyndinni The Girl Who Played With Fire, svo virðist sem ekkert verði úr því, ef marka má ummæli Mara. 










Fleiri fréttir

Sjá meira


×