Handbolti

Hætt'essu: Hvað þarf marga Valsmenn til að hífa upp körfu?

Einar Sigurvinsson skrifar
Karfan sem tafði leik Vals og Aftureldingar var meðal þess sem Tómas Þór og félagar í Seinni bylgjunni fóru yfir í „Hætt'essu“ innslagi þáttarins.

Það er af ýmsu öðru að taka en flottum skotum og markvörslum þegar handboltaleikir eru teknir saman en í lok hvers þáttar fer allt það skemmtilegasta og klaufalegasta í dagskrárliðinn.

Fyrir utan vandræði Valsmanna með körfuna var farið yfir sendingar á mótherja og færi sem fóru forgörðum.

Hægt er að sjá skemmtilegustu atvik síðustu umferðar Olís-deildar karla og kvenna í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×