Viðskipti innlent

Hæstiréttur sýknar alla í SPRON-máli

Birgir Olgeirsson skrifar
Sakborningar í dómsal við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Sakborningar í dómsal við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Vísir/GVA
Fyrrverandi forstjóri SPRON og fjórir fyrrverandi stjórnarmenn sparisjóðsins voru sýknaðir í Hæstarétti í dag af ákæru um umboðssvik.

Fimmmenningarnir, þau Guðmundur Hauksson, Rannveig Rist, Jóhann Ásgeir Baldurs, Ari Bergmann Einarsson og Margrét Guðmundsdóttir voru ákærð fyrir tveggja milljarða króna peningamarkaðsláns sem SPRON veitti Exista rétt fyrir hrun, þann 30. september 2008.

Öll ákærðu neituðu ávallt sök en saksóknari vildi meina að þau hefðu farið út fyrir heimildir sínar til lánveitingar og stefnt fé sparisjóðsins í hættu með því að veita lán án nokkurra trygginga.

Í dómi Hæstaréttar kemur fram samkvæmt árshlutauppgjöri Exista fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008 hefði legið fyrir á stjórnarfundinum, það verið rætt þar og niðurstaða þess, sem hefði sýnt afar sterk eiginfjárstaða félagsins með endurfjármögnun tryggð fram í desember 2009, hefði verið meiginforsenda lánsins.

Hæstiréttur taldi það ósannað að hálfu ákæruvaldsins að forstjórinn og stjórnarmenn hefðu misnotað aðstöðu sína umrætt sinn og þannig gerst brotleg.

Lesa dóm Hæstaréttar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×