Innlent

Hæstiréttur staðfestir dóm yfir „ferðasjúka barþjóninum“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Rúm átta ár eru síðan Fokin hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa svikið tæpa milljón út úr Icelandair.
Rúm átta ár eru síðan Fokin hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa svikið tæpa milljón út úr Icelandair. vísir/gva
Hæstiréttur staðfesti í dag sex mánaða fangelsisdóm héraðsdóms yfir Konstantin Deniss Fokin, eistneskum ríkisborgara, sem gefið var að sök að hafa svikið út farmiða í flug hjá Icelandair fyrir um 327 þúsund krónur í júlí í fyrra.

Fokin var sakfelldur fyrir fjársvik með því að hafa án heimildar notað greiðslukortanúmer annars manns til þess að kaupa flugmiðana. Hann var dæmdur í sex mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í janúar, en hann áfrýjaði dómnum og krafðist þess að refsing hans yrði milduð.

Í dómnum kemur fram að Fokin hafi verið stöðvaður af tollvörðum í Leifsstöð við komu til landsins frá Amsterdam í Hollandi. Í farangri hans hafi fundist fjöldi muna sem ætla megi að ekki séu í eigu hans. Þar á meðal greiðslukort, óútfyllt brottfararspjöld frá mismunandi flugfélögum, merkimiðar ætlaðir áhöfnum mismunandi flugfélaga, óútfylltir úttektarmiðar fyrir hótel og fleira.

Þá lagði Icelandair fram kæru á hendur Fokin 28. júlí annars vegar og 8. september hins vegar fyrir að hafa keypt flugmiða með greiðslukorti annars og krafðist bóta úr hendi mannins vegna brotanna.

Fokin neitaði sök en dómurinn taldi ljóst að af gögnum málsins hafi brotavilji hans verið einbeittur. Þá var jafnframt litið til þess að hann átti langan sakaferil að baki og í flestum tilvikum var um fjármunabrot að ræða.

Fokin hefur áður hlotið dóma hér á landi, í heimalandi sínu og í öðrum Evrópuríkjum. Rúm átta ár eru síðan Fokin, sem nefndur var „ferðasjúki barþjónninn“ í umfjöllun Vísis árið 2007, hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa svikið tæpa milljón út úr Icelandair. Bókaði hann þá flugmiða á netinu með stolnum greiðslukortanúmerum sem hann komst yfir við störf á bar í London.


Tengdar fréttir

Ferðasjúkur barþjónn fékk fjögurra mánaða fangelsi

Konstantin Deniss Fokin, 26 ára gamall eistneskur barþjónn, sem búsettur er í Bretlandi, var í dag dæmdur í fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness. Dóminn fær hann fyrir að hafa bókað níu miða til Íslands og þaðan áfram til Norðurlandanna á netinu með stolnum greiðslukortanúmerum. Fokin var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í síðustu viku og hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan. Hann játaði brot sín bæði við yfirheyrslu og í dómi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×