Innlent

Hæstiréttur staðfestir áframhaldandi gæsluvarðhald

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Maðurinn var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness.
Maðurinn var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness. vísir/anton brink
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manninum sem grunaður er um að hafa orðið Birnu Brjánsdóttur að bana. RÚV greinir frá.

Maðurinn var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald á fimmtudaginn en sá úrskurður var kærður til Hæstaréttar sem hefur nú staðfest gæsluvarðhaldið.

Hann var handtekinn ásamt öðrum manni, sem sleppt hefur verið úr haldi, um borð í grænlenska togaranum Polar Nanoq þann 18. janúar síðastliðinn.

Greint var frá því í gær að lögregla telji að dánarorsök Birnu hefði verið drukknun og að einnig hefðu verið áverkar sem benda til þess að þrengt hafi verið að hálsi hennar.

Maðurinn sem er í gæsluvarðhaldi var síðast yfirheyrður á fimmtudaginn. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær hann verður næst yfirheyrður.

„Við teljum okkur vera búin að yfirheyra hann nokkuð stíft, jafnvel þó það hafi ekki verið gert síðustu daga,“ sagði Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn í samtali við Vísi fyrr í dag.


Tengdar fréttir

Segir að skipverjanum hefði mátt sleppa fyrr

Verjandi skipverjans, sem sleppt var úr haldi fyrir helgi eftir að hafa verið talinn viðriðinn hvarf Birnu Brjánsdóttur, segir að ljóst hafi verið snemma að maðurinn væri saklaus. 

Telja dánarorsök Birnu vera drukknun

Lögreglan telur að dánarorsök Birnu Brjánsdóttur, sem fannst látin við Selvogsvita þann 22. janúar síðastliðinn, hafi verið drukknun.

Birna var á lífi við komuna á bryggjuna

Lögreglan rannsakar hvort Birnu Brjánsdóttur hafi verið ráðinn bani við bryggjusporðinn á Hafnarfjarðarhöfn. Gengið er út frá því að Birnu hafi ekki verið unninn miski fyrr en eftir að hún var ein í bílnum með Thomas Møller Olsen.

Sakaði þann sem er í haldi um nauðgun

Lögreglan hefur farið yfir sakaferil mannsins sem grunaður er um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur. Hann var sýknaður af nauðgun á Grænlandi fyrir fjórum árum. Konan sem kærði manninn þá segir mál Birnu hafa haft mikil áhrif á sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×