Innlent

Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldið yfir skipverjanum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Maðurinn var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness í liðinni viku.
Maðurinn var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness í liðinni viku. vísir/gva
Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja vikna gæsluvarðhald yfir skipverjanum sem grunaður er um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur. Þetta segir Jón H. B. Snorrason, yfirsaksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi en fyrst var greint frá málinu á vef RÚV.

Maðurinn sætir einangrun meðan á gæsluvarðhaldinu stendur en hann hefur nú verið í haldi í á fimmtu viku. Í samtali við Vísi í morgun sagði Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókn málsins, að ekki væri búið að taka ákvörðun um það hvenær maðurinn verður næst yfirheyrður en hann var seinast yfirheyrður á miðvikudaginn í seinustu viku.

Þá sagði Grímur jafnframt að niðurstöður úr rannsóknum á lífsýnum sem send voru erlendis vegna rannsóknarinnar á máli Birnu Brjánsdóttur eru teknar að berast lögreglu hér á landi.

Hann vildi þó ekkert fara út í hvað niðurstöðurnar sýna, hvorki um hvers konar sýni var að ræða né hvað kom út þeim en lögreglan á enn eftir að fá niðurstöður úr fleiri rannsóknum á lífsýnum sem send voru út.

Þá bíður lögreglan enn eftir lokaniðurstöðu krufningar á líki Birnu og þá er staðan enn þannig að engin játning liggur fyrir í málinu. Grímur vill að öðru leyti ekki fara út í það sem fram hefur komið við yfirheyrslur.

Auk mannsins sem situr í gæsluvarðhaldi hefur annar skipverji af Polar Nanoq stöðu sakbornings í málinu. Hann var í einangrun í tvær vikur en var svo sleppt. Ekki var krafist farbanns yfir honum og er hann því nú kominn heim til sín á Grænlandi.

Lík Birnu fannst í fjörunni við Selvogsvita þann 22. janúar síðastliðinn en hennar hafði þá verið saknað í átta daga.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×