Hærri gjaldskrár en heimsóknum fjölgar 23. maí 2012 06:00 Komum til sérfræðilækna á landinu hefur fjölgað um 20 prósent á árunum 2006 til 2010. Fréttablaðið/Gva
Samningsleysi Sjúkratrygginga við sérfræðilækna hefur í för með sér hærri gjöld. Fjórði hver Íslendingur frestaði nauðsynlegri læknisþjónustu árin 2006 og 2007. Finnum fyrir auknum þrýstingi, segir kynningarfulltrúi Sjúkratrygginga. Samningsleysi sérfræðilækna við Sjúkratryggingar Íslands hefur gert það að verkum að margir læknar leggja aukið umsýslugjald á sjúklinga sína. Gjaldskrá hefur hækkað jafnt og þétt síðan í fyrra, en samningar hafa verið lausir síðan í apríl 2011. Komum til sérfræðilækna hefur þó fjölgað mikið á síðustu árum, en árið 2005 voru komurnar um 385 þúsund en um 450 þúsund árið 2010. Læknar hafa þó haft tiltölulega frjálsar hendur í 13 mánuði til að verðleggja þjónustu sína. Ekki eru komnar tölur frá Sjúkratryggingum fyrir síðasta ár. Heiðar Örn Arnarsson, kynningafulltrúi Sjúkratrygginga, segir erfitt að segja hversu miklar hækkanir hafi átt sér stað síðan samningar féllu úr gildi. „Við erum að fá afar takmarkaðar upplýsingar,“ segir hann. „En við finnum fyrir þrýstingi og auðvitað er ósátt fólk að hafa samband við okkur vegna þess að það þarf að leggja út hærri upphæðir.“ Á árunum 2006 og 2007 frestaði eða felldi niður um fjórði hver Íslendingur nauðsynlegri læknisþjónustu. Misjafnt var eftir félagslegri stöðu hvers vegna fólk frestaði komu sinni til lækna. Meðal þeirra sem frestuðu læknisheimsóknum oftar en aðrir var ungt fólk sem á í fjárhagsörðugleikum. Af þeim sem töldu sig vera í miklum fjárhagsörðugleikum höfðu tæp 60 prósent frestað eða sleppt nauðsynlegri læknisþjónustu á sex mánaða tímabili. Þetta er meðal þess sem kom fram í rannsókn Rúnars Vilhjálmssonar félagsfræðings og birt var í fyrra. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að komum til sérfræðilækna hefur fjölgað mikið síðan rannsóknin var gerð. Rúnar segir bráðnauðsynlegt að gera sambærilega rannsókn í dag til að sjá hvaða áhrif efnahagsbreytingarnar í landinu hafa á frestunina og almennt aðgengi að heilbrigðisþjónustu. „Stærsti þátturinn var fjárhagserfiðleikar. Hlutfallið hækkar mikið eftir því sem fólk er í meiri örðugleikum,“ segir Rúnar. Niðurstöðurnar séu viðvörun til stjórnvalda og það sé verulegt áhyggjuefni ef einkafjármögnun verði aukin innan heilbrigðisgeirans, meðal annars með því að hækka sjúklingagjöld enn frekar. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira