Viðskipti innlent

Hærra verð í nærliggjandi bæjarfélögum

Haraldur Guðmundsson skrifar
Fasteignaverð í miðbænum er um 500 þúsund per fm2.
Fasteignaverð í miðbænum er um 500 þúsund per fm2. vísir/anton brink
Húsnæðisverð utan höfuðborgasvæðisins hefur hækkað um 20 prósent síðastliðna tólf mánuði. Í nýrri skýrslu Arion banka um íbúðamarkaðinn kemur fram að sú þróun er að mestu leyti drifin áfram af mikilli hækkun í nágrannasveitarfélögum enda fleiri farnir að horfa til bæja á borð við Selfoss, Akranes og Reykjanesbæ. Í skýrslunni er bent á að ásett meðalfermetraverð á 3-4 herbergja íbúðum í fjölbýli hækkaði um 26 prósent á Akranesi og 22 prósent í Keflavík frá ágúst 2016 til janúar 2017.

„Fermetraverðið í nágrannasveitarfélögunum er um og yfir 200 þúsund krónur í fjölbýli. Það er liggur við tvöfalt hærra í Reykjavík. Hækkun fasteignaverðs á þessum svæðum má rekja til þess sama og á við um landið í heild sinni, eða góður gangur í efnahagsmálum og að heimilin standa almennt vel fjárhagslega. Það er ágætt aðgengi að fjármagni í sögulegu ljósi en það sem hefur helst áhrif á þessi svæði er að það hefur svo lítið verið byggt á höfuðborgarsvæðinu síðustu ár,“ segir Konráð S. Guðjónsson, sérfræðingur hjá greiningardeild Arion banka.

Konráð S. Guðjónsson
„Það er augljóst að fjölgun íbúða er ekki í takt við fjölgun íbúa og eftirspurnina. Það virðist því vera að í fyrra hafi það átt sér stað með nokkuð kröftugum hætti að eftirspurnin á höfuðborgarsvæðinu hafi að einhverju leyti smitast út í nágrannasveitarfélögin,“ segir Konráð.

Íbúðum í byggingu er almennt að fækka í stærri þéttbýliskjörnum utan höfuðborgarinnar. Í skýrslu Arion segir að sú þróun eigi mögulega skýringar í minni umsvifum í íbúðabyggingu en einnig að hækkandi verð hafi leitt til þess að íbúðir hafi verið kláraðar fyrr. Þær íbúðir sem fari á sölu á þessu ári í Reykjanesbæ muni verða átta prósentum dýrari í lok ársins en ef þær hefðu farið á markað í byrjun þess.

„Ef þú ætlar að búa á Selfossi og vinna í Reykjavík gerir þú það ekki nema þú fáir hagstæðara verð og það þarf að vega upp á móti tíma, bensínkostnaði og fleiru. Það hjálpar núna að bensínverð er frekar lágt á heimsmarkaði í hlutfalli við laun. Ef olíuverð hækkar á heimsmarkaði getur það haft áhrif á eftirspurn eftir húsnæði í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Það er kannski ekki það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar það hugsar um hækkun bensínverðs.“ 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×