Innlent

Hælisleitendurnir ekki sendir úr landi í nótt

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Idafe, Martin og Chris verða lengur á Íslandi.
Idafe, Martin og Chris verða lengur á Íslandi.
Beiðni um brottflutning þriggja hælisleitenda hefur verið afturkölluð en þetta staðfestu lögmenn mannanna í samtali við fréttastofu. Tveir mannanna eru nígerískir en sá þriðji kemur frá Ghana.

„Með því fororði að ég sæki um endurskoðun á ákvörðun innanríkisráðuneytisins til kærunefndar útlendingamála og þar fer ég fram á að þessum skjólstæðingum mínum tveimur verði veitt hæli af mannúðarástæðum,“ segir hæstaréttarlögmaðurinn Ragnar Aðalsteinsson í samtali við Vísi. Ragnar fer með mál Martin Omulu og Christian Boadi. „Það er gífurlega margt sem mælir með því að þeir fái slíkt hæli.

„Það er staðfest að skjólstæðingur minn verður ekki fluttur af landi brott í nótt,“ segir Ívar Þór Jóhannsson en hann sér um mál Idafe Onafe Oghene. „Það kemur í ljós á morgun og næstu daga hvað þetta hefur í för með sér en Idafe verður allavega ekki fluttur til Ítalíu sem stendur.“

Til stóð að flytja mennina af landi brott í nótt á grundvelli Dyflinarreglugerðarinnar en þeim var tilkynnt um þá málatilhögum fyrir tæpum 48 klukkustundum. Sú ákvörðun hefur nú verið dregin til baka.


Tengdar fréttir

Hæstiréttur sendir annan hælisleitanda til Ítalíu

Nígerískur hælisleitandi verður sendur til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Í síðustu viku fór innanríkisráðherra fram á að beðið yrði með að senda tvo hælisleitendur til Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×