Innlent

Hælisleitendur gista í leikrýminu

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Móttökustöðin er lokað úrræði, til verndar þeim sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi. Þar búa nú svo margir að leiksvæði barna í húsinu er nýtt sem íbúð.
Móttökustöðin er lokað úrræði, til verndar þeim sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi. Þar búa nú svo margir að leiksvæði barna í húsinu er nýtt sem íbúð. vísir/Anton
Í móttökustöð fyrir hælisleitendur í Bæjarhrauni í Hafnarfirði gista fjölskyldur í rými sem var annars hugsað sem sameiginleg stofa þar sem börn geta leikið sér. Það er vegna fjölda hælisleitenda á landinu sem rýmið er nýtt sem íbúð að sögn Skúla Á. Sigurðssonar, verkefnisstjóra hælissviðs hjá Útlendingastofnun.  

„Útlendingastofnun sinnir fyrst og fremst grunnþörfum hælisleitenda, þ.e. húsnæði, mat, hvers konar heilbrigðisþjónustu, o.s.frv. Rauði krossinn hefur tekið við þar sem því sleppir, til dæmis með leikfanga- og fatagjöfum, félagsstarfi, viðburðum og ýmsum stuðningi. Í húsnæðinu er gert ráð fyrir sameiginlegri stofu fyrir íbúa þar sem börn geta leikið sér en vegna fjölda hælisleitenda á landinu er það rými eins og er nýtt til íbúðar. Ekkert sjónvarp er í húsnæðinu eins og sakir standa.“

Í móttökustöðuna fá engir að koma nema þeir sem þar búa, starfsfólk Rauða krossins og Útlendingastofnunar.vísir/anton
Fjölskyldur, barnafólk og einstæðar konur eru á einni hæð í Hafnarfirðinum og einhleypir karlar á annarri. Ekki er gengt milli hæðanna. Á gangi fyrir karla er sjónvarp og sameiginlegt rými, en ekki á fjölskyldugangi. „Móttökuteymi Útlendingastofnunar hefur óskað eftir því við Rauða krossinn að útveguð verði leikföng fyrir börnin sem búa á vegum stofnunarinnar í Hafnarfirði,“ segir Skúli um aðstæður í húsinu.

Hann segir mannþröngina í Bæjarhrauni vera vegna aukins fjölda hælisumsókna sem hafa borist frá því í sumar. Í ágúst og september sóttu 110 manns um hæli í þessum tveimur mánuðum. Það sem af er árinu hafa 218 manns sótt um hæli og búist er við allt að 350 hælisleitendum á árinu. 

Aðstæður í móttökustöðinni eru annars ágætar, að sögn hælisleitanda sem gistir þar núna. Sólahringsvakt frá Securitas er á staðnum og þá er einn starfsmaður Útlendingastofnunar með viðveru í húsnæðinu. Þar er jafnframt viðtalsherbergi sem Útlendingastofnun notar fyrir vikulega viðtalstíma. Þráðlaust net er komið upp í húsinu sem íbúarnir eru þakklátir fyrir, það auðveldar þeim að leita sér upplýsinga og vinna að umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×