Innlent

Hælisleitandi sem óttast um líf sitt í Frakklandi á leið úr landi

Birgir Olgeirsson skrifar
Eduard Sakash flýði Rússland árið 2013.
Eduard Sakash flýði Rússland árið 2013.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af kröfum rússnesk hælisleitanda sem fór fram að ógilt yrði sú ákvörðun Útlendingastofnunar að mál hans yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi. 

Hælisleitandinn heitir Eduard Alexandrovixh Sakash og er frá Rússlandi en hann sótti um hæli hér á landi í nóvember árið 2014. Við skoðun kom í ljós að hann hafði fyrst sótt um hæli í Frakklandi og var umsókn hans hér á landi hafnað, bæði af Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála, með vísan til Dyflinarreglugerðarinnar.

Varð fyrir líflátstilraun í Moskvu

Sakash starfaði sem viðskiptalögfræðingur í Moskvu en hann sagði í samtali við fréttastofu 365 í fyrra að hann hefði ítrekað orðið fyrir líkamsárásum í heimalandi sínum sökum kynhneigðar sinnar.

Auk þess að vera virkur í réttindabaráttu samkynhneigðra í Rússlandi var hann einnig virkur í baráttu stjórnarandstæðinga gegn forseta landsins, Vladimír Pútín. Hann sagði árásarmenn hafa reynt að drepa sig rétt við íbúðina hans í Moskvu í október árið 2013 og ákvað hann í kjölfarið að flýja land.

Fyrr sama ár samþykkti rússneska þingið samþykkt frumvarp sem gera alla umfjöllun eða opna umræðu um samkynhneigð ólöglega í Rússlandi. Leið hans lá til Frakklands þar sem fékk að vera en án atvinnuleyfis eða nokkurrar aðstoðar.

Telur lífi sínu ógnað í Frakklandi vegna ISIS

Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur sagði hann líf sitt í mikilli hættu verði honum gert að snúa til Frakklands. Sagði hann aðstæður í Frakklandi þannig í dag, í kjölfar hryðjuverkaárása af völdum ISIS beinlínis hættulegar. Sérstaklega séu aðstæðurnar hættulegar samkynhneigðum og þeim sem séu á móti íslamstrú, en hann flokkist undir báða hópa.

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að ákvörðun Útlendingastofnunar og kærunefndar útlendingamála um að taka hælisumsókn hans ekki til efnismeðferðar sé byggð á Dyflinnarsamstarfinu sem Ísland er aðili að, og ber því að vísa beiðni Sakash til Frakklands vegna ábyrgðar þarlendra yfirvalda á umfjöllun um hælisbeiðni hans. 

Var það mat Héraðsdóms Reykjavíkur að stjórnvaldsákvarðanir sem teknar voru í máli Sakash hafi ekki verið haldnar þeim annmörkum að leitt geti til ógildingar þeirra. Var íslenska ríkið því sýkna af kröfum Sakash í máli þessu. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×