Viðskipti erlent

Hækkun hafin á vöruverði í Bretlandi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Allt frá því að kosningar um útgöngu úr Evrópusambandinu fóru fram hefur pundið lækkað um 10 prósent gagnvart dal.
Allt frá því að kosningar um útgöngu úr Evrópusambandinu fóru fram hefur pundið lækkað um 10 prósent gagnvart dal. Vísir/EPA
Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í Bretlandi í júní um að yfirgefa Evrópusambandið hefur breska pundið fallið verulega. Það hefur valdið vandræðum fyrir innflytjendur, þar á meðal raftækjaframleiðendur, fataverslanir og bílaframleiðendur.

Á undanförnum dögum hafa margir þeirra ákveðið að hækka vöruverð. Aðrir hafa varað við því að þeir muni hækka verð.

Bandarískir og asískir raftækjaframleiðendur, sem greiða helst kostnað af framleiðslu sinni í bandaríkjadal og jeni, voru á meðal þeirra fyrstu sem ákváðu að hækka vöruverð.

En gengi bæði dals og jens hefur hækkað að undanförnu. Gengi breska pundsins er 10 prósentum lægra gagnvart dollaranum en það var þegar þjóðaratkvæðagreiðslan fór fram hinn 23. júní síðastliðinn.

Sölumenn í London segja að framleiðendur á borð við Dell og HTC hafi hækkað verð á vörum um 5-15 prósent á síðustu dögum.

„Verð hefur klárlega hækkað á öllum rafvörum,“ segir Sohel Amin, sem stýrir Itbex UK, en það er verslun sem selur raftæki á lágu verði (e. outlet store).

Stjórnendur bandaríska tölvurisans Dell sögðu í yfirlýsingu að sterkari bandaríkjadalur myndi hafa bein áhrif á hluta af þeirri framleiðslu sem seld er breskum neytendum.

Haft er eftir Sally Moore, talskonu fyrirtækisins, á vef Wall Street Journal að verðhækkanirnar og tímasetningar þeirra væru ólíkar eftir ólíkum vöruflokkum.

Jens Garðar Helgason - Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi - SFS - LÍÚ - Kolbeinn Árnason -
Eins og fram hefur komið er Bretland einn mikilvægasti einstaki markaðurinn fyrir útflytjendur íslenskra sjávarafurða.

Aðspurður hvort íslenskir fiskútflytjendur séu þegar farnir að grípa til sömu ráðstafana og raftækja- og bílaframleiðendur segir Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, að hægagangur sé nú í fiskvinnslu undanfarið vegna sumarleyfa. Þá séu viðskiptin mjög misjöfn og margir með viðskiptasamninga mánuði fram í tímann.

„En margir eru mjög áhyggjufullir yfir þessari þróun og menn eru farnir að ræða það við kaupendur að það þurfi að sækja hækkun til að vega á móti. En ég hef ekki heyrt neitt hvernig það hefur gengið,“ segir Jens Garðar. Hann reiknar þó með að fiskútflytjendur muni bregðast við á sama hátt og aðrir framleiðendur. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu


Tengdar fréttir

Fataverð á niðurleið vegna hruns pundsins

Gengi pundsins gagnvart íslenskri krónu hefur lækkað um ellefu prósent frá Brexit-kosningunum. Vöruverð í breskum fataverslunum hér á landi mun lækka í takt við gengið. Hlutabréf í bresku netversluninni ASOS hafa hækkað hratt.

Engar formlegar viðræður um útgöngu fyrir áramót

„Við verðum að hlusta eftir því hvað Bretar vilja og finna út rétta svarið,“ sagði Angela Merkel, kanslari Þýskalands, á blaðamannafundi í Berlín í gær að loknum fundi hennar með Theresu May, nýjum forsætisráðherra Bretlands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×