Innlent

Hægt að taka upp evru í náinni framtíð

Heimir Már Pétursson skrifar
Formaður Samfylkingarinnar segir stóru tíðindin í skýrslu Aþjóðastofnunar um Evrópusambandið hversu fljótt Íslandi gæti tekið upp evru. Fjármálaráðherra segir aðild að sambandinu hins vgear snúast um miklu meira en gjaldmiðilinn.

Árni Páll Árnason var málshefjandi í umræðum um skýrslu alþjóðastofnunar Háskóla Íslandi á Alþingi í dag og sagði hana gott innlegg í þá nauðsynlegum og vitibornu umræðu sem þyrfti að fara fram um evrópumál. Í skýrslunni kæmi fram að hægt væri að ná fram viðunandi lausn í bæði sjávarútvegsmálum og landbúnaðarmálum í viðræðum við sambandið.

„Stóru tíðindin eru svo í umfjöllun um peningamál. Það er skýrt greint frá því í skýrslunni hvernig aðild að Evrópusambandinu og fyrirheit um upptöku evru muni greiða fyrir afnámi hafta og útfært í nokkrum smáatriðum hvernig hægt sé að nýta þá aðstöðu að þjóðin sé á leið inn í Evrópusambandið. Upptaka evru sé innan fyrirsjáanlegrar framtíðar,“ sagði Árni Páll.

Upptaka evru væri besti kosturinn í stöðunni til að losna við gjaldeyrishöftin. En það væri rétt hjá fjármálaráðherra að ekkert væri svart og hvítt í þessari umræðu og evra leysti ekki allan vanda þjóðarinnar.

Uppspretta erfiðleika í íslensku efnahagslífi undanfarna áratugi hefur ekki verið í flestum tilfellum af ytri áföllum, heldur vegna veikrar hagstjórnar þar sem krónan hefur gefið stjórnmálamönnum færi á að lækka laun til að losa sjálfa sig út úr mistökum eftirá,“ sagði formaður Samfylkingarinnar.

„Ákvörðun um að ganga inn í Evrópusambandið er miklu stærri ákvörðun en sú að gera breytingar í peningamálum. Það er mjög stór pólitísk ákvörðun og hún snertir fjölmörg svið mannlífsins á Íslandi og hún verður ekki tekin nema höfð sé hliðsjón af þeirri þróun sem á sér stað í Evrópusambandinu í dag,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.

Margt benti til þess að Evrópusambandið væri að sigla inn í ástand stöðunar og verðhjöðnunar.

„Mér finnst ekki margt nýtt í þessari skýrslu. Mér finnst að dregnar sé ályktanir oft út frá dálítið takmörkuðum upplýsingum og fátt sem kemur á óvart,“ sagði Bjarni .




Fleiri fréttir

Sjá meira


×