Tónlist

Hægt að streyma tónleikunum í beinni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ásgeir Trausti heldur tónleika inni í listaverkinu Your Rainbow Panorama eftir Ólaf Elíasson á þaki listasafnsins ARoS í Árósum í Danmörku í kvöld. Listaverkið er hringlaga og í litum regnbogans og verða Ásgeir og tónleikagestir inni í hringnum á meðan á tónleikunum stendur. 

Hægt verður að streyma tónleikunum í beinni útsendingu á smáforritinu SubCell en forritið er fáanlegt á iTunes og Google Play og kostar fimm dollara, tæplega sex hundruð krónur. Löngu er uppselt á tónleikana en aðeins voru 250 miðar í boði.

Tónleikarnir eru liður í samstarfsverkefni ARoS og tónleikastaðarins Train sem heitir Beyond Borders. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×