Viðskipti innlent

Hægt að staðfesta skuldaniðurfærslu í dag

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tryggvi Þór Herbertsson verkefnisstjóri.
Tryggvi Þór Herbertsson verkefnisstjóri.
Þeir sem eiga rétt á skuldaniðurfærslum í gegnum Leiðréttinguna sem ríkisstjórnin hafði boðað geta staðfest umsókn sína frá og með deginum í dag. Umsækjendur munu fá tilkynningu á tölvupósti þegar búið er að opna fyrir staðfestinguna.

„Það verður opnað fyrir þetta núna einhvern tímann næstu tvo eða þrjá tímana,“ sagði Tryggvi Þór Herbertsson verkefnisstjóri um framkvæmd höfuðstólslækkunar íbúðalána í samtali við Vísi nú klukkan níu í morgun.

Í samtali við Vísi klukkan 15 segir Tryggvi að opnað hafi verið fyrir samþykki skuldaniðurfærslunnar klukkan 13 í dag.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×